Gísli Þorgeir fagnaði fyrsta titlinum: „Titill er titill“
Ronny Hartmann / AFP

Gísli Þorgeir Kristjánsson og félagar í SC Magdeburg byrjuðu tímabilið með látum þegar þeir lögðu Füchse Berlin, 38-31, í þýska Ofurbikarnum.

Magdeburg, sem er ríkjandi Þýskalandsmeistari, hafði yfirhöndina stóran hluta leiksins og Gísli Þorgeir var ánægður með frammistöðuna og ekki síður að byrja tímabilið með titli.

„Það er alltaf gaman að vinna titla, þetta er klárlega ekki stærsti titill tímabilsins en titill er titill“ sagði Gísli Þorgeir eftir leik.

Magdeburg gerði fá mistök og Gísli var sérstaklega ánægður með hversu hratt liðið skilaði sér til baka í vörnina.

„Við vorum mjög einbeittir og með fulla athygli á öllum þáttum frá fyrstu mínútu og hlaupin til baka í vörnina hjá okkur allan leikinn voru frábært.“

Markverðir Magdeburg lögðu einnig sitt af mörkum með mikilvægum vörslum og að mati Gísla var liðið öruggt og stöðugt á öllum sviðum.

Þrátt fyrir sannfærandi sigur telur Gísli Þorgeir að nóg sé eftir til að bæta áður en Bundesliga hefst.

„Handbolti er íþrótt þar sem mistök eru gerð. Það eru alltaf atriði sem hægt er að greina og reyna að gera betur.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top