Ívar Bessi Viðarsson, leikmaður ÍBV, verður frá keppni fram í febrúar hið minnsta eftir að hafa ristarbrotnað á æfingu með liðinu á dögunum. Þetta staðfesti Sigurður Bragason, aðstoðarþjálfari ÍBV, í samtali við Handkastið. „Það er brotið bein í ristinni á honum. Hann er líklega frá fram í febrúar. Hann missteig sig mjög illa á lokaæfingunni fyrir Holland,“ sagði Sigurður. Um er að ræða mikið áfall fyrir Eyjamenn. Hann hefur leikið allan sinn feril með félaginu og er með samning hjá ÍBV til ársins 2027. Þetta er jafnframt í annað sinn sem Ívar Bessi verður fyrir því óláni að ristarbrotna. Hann ristarbrotnaði einnig í mars árið 2024. Meiðsli Ívars Bessa bætast við erfiða meiðslastöðu hjá ÍBV. Elís Þór Aðalsteinsson, samherji hans, ristarbrotnaði á síðustu leiktíð og missti af nokkrum leikjum vegna meiðslanna. Elís Þór verður svo einnig frá keppni á komandi tímabili eftir að hafa slitið krossband í sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.