Hafdís hægt og rólega á leið til baka
Egill Bjarni Friðjónsson)

Hafdís Renötudóttir markvörður Íslands, deildar og bikarmeistara Vals er hægt og rólega að vinna sig aftur inn eftir meiðsli en markvörðurinn er ekki enn kominn á fullt. Hún hefur ekki verið með Val í undirbúningsleikjunum fyrir mót.

Valur mætir Haukum í Meistarakeppni HSÍ á föstudaginn klukkan 18:00 og verður leikurinn sýndur í Handboltapassanum og á Livey.

Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, segir stöðuna á Hafdísi vera metna frá viku til viku og vonast til þess að hún geti farið að taka meiri þátt á næstunni.

„Einnig að koma hægt og rólega tilbaka eftir meiðsli. Staðan metin í hverri viku og mun vonandi fara koma meira inn í þetta á næstunni,“ sagði Anton við Handkastið.

Hafdís er einn af lykilmönnum Vals og því er mikilvægt fyrir meistarana að fá hana aftur í fullt stand. Elísabet Millý Elíasardóttir gekk í raðir HK en í hennar stað hefur Valur fengið færeyska markvörðinn, Mariu Beder.

Valur er að vinna í því að gera hana löglega fyrir leikinn á föstudaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top