Viktor Alex ráðinn til Fjölnis

Viktor Alex Ragnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Fjölni.

Viktor Alex kemur inn í þjálfarateymi Gunnars Vals Arasonar og mun samhliða starfi aðstoðarþjálfara sinna markmannsþjálfun hjá liðinu.

Viktor Alex þekkir vel til liðsins en hann kom inn í þjálfarateymið á seinni hluta síðasta tímabils.

"Það gleður okkur mikið að fá Viktor Alex inn í teymið með Gunnari Val. Hann sýndi strax á síðasta tímabili hversu góð áhrif hann hefur á markmennina og þeirra þróun. Við erum mjög ánægð með að halda samstarfinu áfram og hlökkum til komandi tímabils“ segir í tilkynningu frá Fjölni í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top