Aðstoðarlandsliðsþjálfarinn kominn í þjálfarateymi Vals
Sævar Jónasson

Óskar Bjarni Óskarsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins, er kominn inn í þjálfarateymi Vals í Olís-deild kvenna.

Óskar Bjarni kemur inn í teymið ásamt Antoni Rúnarssyni og Sigurgeiri Jónssyni en Hlynur Morthens verður áfram markmannsþjálfari liðsins.

Ráðning Óskars Bjarna er áhugaverð í ljósi þeirrar umræðu sem skapaðist innan handboltahreyfingarinnar um störf landsliðsþjálfara með félagsliðum. Á 69. ársþingi HSÍ í vor var samþykkt ályktun þess efnis að fela stjórn sambandsins að útfæra reglur sem kæmu í veg fyrir að þjálfarar sem kæmu að þjálfun A-landsliða og U21-landsliða Íslands gætu samtímis verið þjálfarar eða hluti af þjálfarateymi íslenskra félagsliða.

Mikil umræða varð um tillöguna innan hreyfingarinnar og var hún meðal annars rædd í hlaðvarpsþætti Handkastsins á sínum tíma.

Stjórn HSÍ tók málið síðan til umfjöllunar og komst að þeirri niðurstöðu að ekki væru forsendur fyrir því að innleiða slíkar reglur að svo stöddu. Með því var ljóst að ekki yrði sett regla sem kæmi í veg fyrir að landsliðsþjálfarar störfuðu jafnframt hjá félagsliðum.

Ljóst er að Valur hefur nýtt sér þá ákvörðun HSÍ, en formaður HSÍ, Jón Halldórsson er fyrrum formaður handknattleiksdeildar Vals.

Í rökstuðningi sínum lagði stjórn HSÍ meðal annars áherslu á að hópur afreksþjálfara hér á landi væri takmarkaður og mikilvægt væri að hæfustu og reynslumestu þjálfararnir væru í boði fyrir landsliðin. Slík takmörkun gæti þrengt verulega þann hóp sem HSÍ gæti leitað til.

Þá benti stjórnin á mikilvægi þess að þjálfarar, sérstaklega ungir og efnilegir, fengju tækifæri til að þjálfa reglulega með félagsliðum og þróa sig í gegnum daglegt æfinga- og keppnisstarf. Landsliðsverkefni bjóða ekki upp á sambærilegt æfingaumhverfi.

Einnig vísaði stjórn HSÍ til atvinnufrelsis þjálfara og þess að landsliðsþjálfarastörf væru alla jafna ekki fullt starf. HSÍ hefði ekki fjárhagslega burði til að bjóða þjálfurum kjör sem gætu komið í stað tekna þeirra hjá félagsliðum.

Að lokum taldi stjórnin að hægt væri að treysta landsliðsþjálfurum sambandsins til að sinna störfum sínum af heilindum og bregðast við mögulegum hagsmunaárekstrum hverju sinni.

Ráðning Óskars Bjarna hjá Val er því fyrsta áberandi dæmið eftir þessa umræðu um að landsliðsþjálfari taki jafnframt sæti í þjálfarateymi íslensks félagsliðs. Hann mun nú sinna starfi sínu með íslenska kvennalandsliðinu samhliða verkefnum sínum hjá Val.

Gera má ráð fyrir því að Óskar Bjarni verður á hliðarlínunni á föstudaginn þegar Valur og Haukar mætast í Meistarakeppni HSÍ klukkan 18:00 á Hlíðarenda.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top