Óli Guðmunds með óvænta endurkomu – Fékk rautt eftir sjö sekúndur
Peter Lindström / IFK

Þrátt fyrir að hafa gefið það út í upphafi sumars að skórnir væru komnir á hilluna sneri Ólafur Guðmundsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands aftur á handboltavöllinn í gær með IFK Kristianstad í sænska bikarnum er liðið vann Jim Gottfridsson og félaga í IFK Ystads 35-29.

Ólafur fékk höfðinglegar móttökur frá stuðningsmönnum félagsins þegar hann var kynntur fyrir leik en Ólafur lék á sínum tíma með félaginu á gullaldarárum félagsins. Myndband af því má sjá hér neðst í fréttinni. Hann hefur búið í Kristianstad síðustu ár þrátt fyrir að hafa verið samningsbundinn Karlskrona þar til í sumar. Þá hefur hann einnig leikið í Danmörku, Þýskalandi, Frakklandi og Sviss.

Endurkoma Ólafs entist hinsvegar ekki lengi í leiknum í gær því Ólafur fékk að líta rauða spjaldið frá dómurum leiksins eftir aðeins sjö sekúndur inn á vellinum.

Miklar Íslandstengingar eru í liði Kristianstad en með tilkomu Ólafar eru fjórir íslenskir leikmenn í herbúðum liðsins og þá er aðstoðarþjálfari liðsins, Gunnar Steinn Jónsson sem lék einnig á sínum tíma með félaginu.

Leikurinn í gær var seinni leikur liðanna í 16-liða úrslitum sænska bikarsins en Kristianstad stóð vel að vígi fyrir leikinn eftir sigur í fyrri leik liðanna.

En eins og fyrr segir var endurkoma Ólafar í styttra móti. Hann kom inná um miðbik seinni hálfleiks. Honum var vel fagnað af stuðningsmönnum liðsins þegar hann kom inná en stuðningsmenn Kristianstad voru enn að fagna innkomu hans þegar hann fékk að líta rauða spjaldið.

Einar Bragi Aðalsteinsson og Baldur Fritz Bjarnason skoruðu fimm mörk hvor og Andri Erlingson skoraði með tvö.  Eins og gefur að skilja skoraði Ólafur ekki í leiknum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top