Meistarakeppni HSÍ fer fram á föstudaginn í N1-höllinni að Hlíðarenda þar sem Valur og Haukar mætast í svokölluðum tvíhöfða. Kvennaliðin ríða á vaðið klukkan 18:00 en síðan mætast karlaliðin klukkan 20:15. Leikirnir marka því formlega upphaf nýs handboltatímabils hér á landi. Valur er ríkjandi Íslandsmeistari í bæði karla- og kvennaflokki. Kvennalið félagsins er einnig ríkjandi bikarmeistari eftir sigur á Haukum í bikarúrslitum síðasta tímabils. Haukar eru hins vegar ríkjandi bikarmeistarar í karlaflokki eftir sigur á ÍR í úrslitaleiknum á síðasta tímabili. Stjarnan vann Meistarakeppni HSÍ í karlaflokki í fyrra eftir sigur á Fram, en Valur hafði betur gegn Haukum í kvennaflokki. Leikirnir verða báðir sýndir í Handboltapassanum og Livey.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.