Stefni á að komast inn á völlinn í nóvember
KA

Í febrúar síðastliðnum tilkynnti KA/Þór að Aldís Ásta Heimisdóttir væri gengin í raðir félagsins frá Skara í Svíþjóð.

Síðastliðin fjögur leiktímabil spilaði hún með Skara í Svíþjóð og varð m.a Svíþjóðarmeistari og deildarmeistari með liðinu. Lék hún einkar vel og var fljótt komin í lykilhlutverk hjá liðinu.

Áður en hún fór til Svíþjóðar haustið 2022 lék hún 170 leiki fyrir KA/Þór og vann t.a.m allt sem hægt var að vinna með KA/Þór liðinu tímabilið 2020/2021.

Aldís Ásta eignaðist barn síðastliðið vor en setur stefnuna á að koma aftur inn á völlinn á næstu mánuðum. Handkastið heyrði aðeins í Aldísi og fékk hana til að tjá sig um dvölina í Svíþjóð, endurkomuna á völlinn eftir barnsburð og tímabilið framundan hjá KA/Þór.

"Tíminn í Svíþjóð og þessi fjögur tímabil voru frábær. Ég var mjög heppin með lið og liðsfélaga í Skara. Ég komst strax inn og í liðið og fékk að spila mikið. Fyrstu tvö árin mín vorum við með þjálfara úr gamla skólanum sem var alls ekki með mikla taktík sem hentaði ekki mínum leikstíl en hann var skemmtilegur og ég lærði mikið af honum og komst í mun betra form en ég var í þegar ég mætti."

,,Þriðja árið mitt fengum við nýjan þjálfara sem var síðan látinn fara í byrjun tímabils, sem betur fer. Þá var ráðinn nýr þjálfari og hann gjörbreytti öllu. Hann er mjög taktískur þjálfari sem hentar mér mjög vel og hann náði fram öllu því besta úr öllum leikmönnunum í liðinu. Við unnum þá Deildarmeistaratitilinn og sænska meistara titilinn"

"Ég ákvað svo að skrifa undir í eitt ár í viðbót þar sem mig langaði að vinna titilinn aftur og spila í Evrópu. En í október 2025 komst ég að því að ég væri ólétt af litlu stelpunni minni og því flutti ég og kærasti minn heim til Íslands. Í júní eignuðumst við litlu stelpuna okkar sem er algjör draumur.
Það var ekkert annað lið heldur en KA/Þór sem kom til greina að spila með svo ég skrifaði undir hjá þeim"

"Ég er mjög spennt fyrir liðinu, við erum með geggjaðar ungar stelpur sem eru góðar og mjög efnilegar. Síðan erum við komnar með Færeyinga og Slóvaka sem eru spennandi. Ég hlakka ótrúlega mikið að geta byrjað að spila með þeim á fullu. Ég er byrjuð að hreyfa mig og mæta á æfingar með stelpunum aðallega bara til að horfa á og komast út úr húsi í smástund. Ég stefni á að komast inn á völlinn í nóvember/desember en við sjáum til hvernig þetta mun ganga," sagði Aldís Ásta að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top