Íslendingarnir ekki með Erlangen í tapi gegn Ými
Kadir Caliskan / Middle East Images via AFP

Frisch Auf Göppingen hóf nýtt tímabil í þýsku Bundesligunni með sigri þegar liðið lagði HC Erlangen, 32–30 á heimavelli í kvöld. Göppingen hafði fjögurra marka forskot í hálfleik 17–13 og hélt Erlangen í hæfilegri fjarlægð lengst af seinni hálfleiks.

Marcel Schiller og Elias Newel voru markahæstir í liði Göppingen með sjö mörk hvor. Göppingen náði góðum tökum á leiknum og tryggði sér að lokum tvö stig í fyrsta deildarleik tímabilsins.

Ýmir Örn Gíslason var í liði Göppingen en komst ekki á blað sem markaskorari. Íslendingarnir hjá Erlangen, Andri Már Rúnarsson og Viggó Kristjánsson, voru hins vegar ekki í leikmannahópi liðsins að þessu sinni en báðir hafa þeir verið að glíma við meiðsli á undirbúningstímabilinu.

Þetta var eini leikurinn í þýsku Bundesligunni í dag en 1.umferðin lýkur á morgun.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top