Sara Dröfn snýr aftur til Eyja

Sara Dröfn Richardsdóttir hefur gengið til liðs við ÍBV frá Selfossi og undirritað tveggja ára samning við félagið.

Sara Dröfn er hægri hornamaður og uppalin hjá ÍBV. Var hún ung byrjuð að leika með meistaraflokki félagsins.

Hefur hún einnig leikið með yngri landsliðum Íslands. Haustið 2024 fór hún í Selfoss en snýr nú aftur til Eyja á heimaslóðir.

"Við bjóðum Söru Dröfn velkomna heim til Eyja og hlökkum til samstarfsins" segir í tilkynningu frá ÍBV nú í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top