Teitur glímir við sjaldgæf meiðsli
Andreas Gora /AFP

Teitur Örn Einarsson leikmaður íslenska landsliðsins og þýska liðsins, Gummersbach var ekki með liðinu er mætti þýsku meisturunum í Magdeburg í 1.umferð þýsku Bundesligunnar um helgina. Magdeburg hafði betur með tveimur mörkum 33-31 eftir jafnan og spennandi leik.

Elliði Snær Viðarsson skoraði sjö mörk í leiknum en Garðar Ingi Sindraason kom ekki við sögu í leiknum hjá Gummersbach.

Ástæðan fyrir fjarveru Teits er einföld en hann staðfesti í samtali við Handkastið að hann væri tognaður á framanverðum vöðva í hálsinum.

,,Ég er búinn að vera frá æfingum í tvær vikur og það er ekki nein nákvæm tímasetning hvenær ég sný aftur til baka. Þetta eru svo sjaldgæf meiðsli að það er lítið hægt að bera sig saman við aðra," sagði Teitur í samtali við Handkastið.

Gummersbach mætir Rhein Neckar Löwen á morgun og svo fær liðið MT Melsungen í heimsókn um næstu helgi áður en liðið heimskir Fuchse Berlín. Alvöru byrjun á tímabilinu hjá liðsfélögum Guðjóns Vals.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top