Ýmir tapaði stórt gegn Reyni – Haukur tapaði gegn Guðjóni Val
UWE ANSPACH /AFP

Fimm leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í handbolta í kvöld. Tveir leikir enduðu með jafntefli, en í hinum þremur tókst gestaliðunum að fagna sigri.

Erlangen og Hannover-Burgdorf skildu jöfn, 28-28. Viggó Kristjánsson skoraði fjögur mörk fyrir Erlangen og Andri Már Rúnarsson eitt. Frieder Bandlow var markahæstur á vellinum með átta mörk fyrir Erlangen.

Í Hamburg gerðu heimamenn í Hamburg og Stuttgart einnig jafntefli, 34-34. Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Hamburg. Nicolaj Jorgensen var markahæstur með tíu mörk fyrir Hamburg en Kai Hafner og Mohamed Darmoul skoruðu átta mörk fyrir Stuttgart.

MT Melsungen vann stórsigur á Göppingen, 31-18. Reynir Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir Melsungen. Ýmir Örn Gíslason skoraði tvö mörk fyrir Göppingen. Hægri hornamaðurinn hjá Melsungen, Leon Stehl var markahæstur með sex mörk úr sex skotum.

Flensburg-Handewitt vann Arnór Þór Gunnarsson og lærisveina hans í Bergischer HC, 34-29. Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki fyrir Flensburg. Finn Hangstein leikmaður Bergischer var markahæstur í leiknum með tíu mörk. Marko Grgic var markahæstur í liði Flensburg með átta mörk.

Í síðasta leik kvöldsins vann Gummersbach Rhein-Neckar Löwen, 31-26. Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach en Haukur Þrastarson skoraði eitt mark fyrir Löwen úr átta skotum. Miro Schluroff hélt uppteknum hætti frá því í 1.umferðinni og skoraði níu mörk ásamt Svíanum, Nikola Roganovic.

Garðar Ingi Sindrason kom aðeins við sögu í leiknum en kom sér ekki á blað. Teitur örn Einarsson var ekki í leikmannahópi Gummersbach vegna meiðsla.

Alls skoruðu íslensku leikmennirnir 15 mörk í leikjunum fimm.

Úrslit kvöldsins:

Erlangen - Hannover Burgdorf 28-28
Hamburg - Stuttgart 34-34
Melsungen - Göppingen 31-18
Bergischer - Flensburg 29-34
Rhein Neckar Löwen - Gummersbach 26-31.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top