
Olísdeildin og Grill 66 deildin halda sínum nöfnum næstu þrjú árin. Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) og Olís hafa undirritað nýjan þriggja ára samstarfssamning sem tryggir að Olís verði áfram aðalstyrktaraðili efstu og næstefstu deilda íslensks handbolta. Deildirnar munu því áfram bera nöfnin Olísdeild karla og kvenna og Grill 66 deild karla og kvenna. Samningurinn tekur gildi með nýju keppnistímabili og framlengir þar með eitt lengsta og umfangsmesta samstarf íslensks íþróttalífs. Olís hefur verið aðalstyrktaraðili deildakeppni HSÍ samfellt frá haustinu 2013 þegar Íslandsmótið í handknattleik fékk fyrst nafnið Olís-deildin. Samstarfið hefur verið endurnýjað reglulega síðan og með nýja samningnum stefnir það í sextánda árið í röð. Þegar Olís tók við sem aðalstyrktaraðili árið 2013 var markmiðið að byggja upp deildakeppnina sem sterkt vörumerki í íslensku íþróttalífi. Á þeim þrettán árum sem liðin eru hefur Olísdeildin fest sig í sessi sem umgjörð um sterkustu handknattleiksdeildir landsins, meðal annars með aukinni fjölmiðlaumfjöllun, beinum útsendingum og meiri sýnileika. Grill 66 deildin hefur jafnframt skapað sér skýra stöðu sem næsta skref fyrir félög og leikmenn sem stefna upp í efstu deildir. Þar keppa félög víðs vegar um landið og fjölmargir ungir leikmenn fá sín fyrstu tækifæri í meistaraflokki. Nýi samningurinn nær til allra fjögurra deildanna, karla og kvenna, í efstu og næstefstu deild. Áfram verður því lögð áhersla á að deildir karla og kvenna njóti sömu umgjörðar og sýnileika. Stafrænn sýnileiki Olísdeildarinnar jókst verulega á síðasta keppnistímabili. Á Instagram-miðli deildarinnar mældust alls 15,5 milljónir áhorfa á tímabilinu 2025/26. Þar voru birtar 284 færslur á níu mánaða tímabili. Fylgjendum fjölgaði einnig umtalsvert, úr 1.600 í upphafi tímabils í 5.000 í lok þess, sem jafngildir 213 prósenta aukningu. Þessi þróun verður ein af áherslum næstu þriggja ára þar sem HSÍ og Olís hyggjast halda áfram að styrkja stafræna miðlun deildanna í samstarfi við aðildarfélögin. „Það er mikill styrkur fyrir handknattleikshreyfinguna að eiga samstarfsaðila sem hefur staðið með okkur í á annan áratug. Olís hefur ekki bara sett nafn sitt á deildirnar, heldur tekið þátt í að byggja þær upp og styrkja ásýnd handboltans á Íslandi. Þessi samningur gefur okkur það sem íþróttahreyfingin þarf mest á að halda, fyrirsjáanleika til að skipuleggja starfið til lengri tíma,“ segir Jón Halldórsson, formaður HSÍ. Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri Olís, segir samstarfið einnig mikilvægt fyrir fyrirtækið. „Handboltinn er hluti af sjálfsmynd okkar sem þjóðar, hann lifir í félögum um allt land og við leggjum mikið upp úr að þjónusta allt landið. Þess vegna er þetta samstarf okkur svo mikilvægt. Við erum stolt af því að hafa fylgt Olísdeildinni og Grill 66 deildinni frá fyrsta degi og hlökkum til næstu þriggja ára, þar sem við ætlum að leggja sérstaka áherslu á að stuðningurinn skili sér alla leið niður í yngstu flokkana,“ segir Ingunn Svala.Þrettán ár af samfelldu samstarfi
15,5 milljónir áhorfa á Instagram

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.