Gísli skoraði fimm í sigri Magdeburg gegn Berlín
RONNY HARTMANN /AFP

Fjórir leikir fóru fram í 2. umferð þýsku Bundesligunnar í kvöld. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm mörk þegar Magdeburg vann Füchse Berlin í stórleik kvöldsins en Ómar Ingi Magnússon lék ekki með vegna veikinda. Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyrir Magdeburg í leiknum.

Magdeburg hafði betur gegn Füchse

Magdeburg vann 36-32 sigur á Füchse Berlin eftir að gestirnir höfðu leitt 14-13 í hálfleik. Magdeburg tók frumkvæðið eftir hlé, náði fjögurra marka forskoti og lét það ekki af hendi.

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg en fékk rautt spjald þegar um átta mínútur voru eftir. Ómar Ingi Magnússon lék ekki með vegna veikinda og greinir þýski miðillinn Bild frá því að hann hafi verið með hita. Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyrir Magdeburg í leiknum.

Magnus Saugstrup var markahæstur Magdeburg með sjö mörk og Mathias Gidsel skoraði sjö fyrir Füchse.

RONNY HARTMANN / AFP
03 September 2026, Saxony-Anhalt, Magdeburg: Men's Handball: Bundesliga, SC Magdeburg vs. Füchse Berlin, Matchday 26, GETEC Arena. Magdeburg's Magnus Saugstrup (right) breaks through at the circle. Photo: Ronny Hartmann/dpa (Photo by RONNY HARTMANN / dpa Picture-Alliance via AFP)

Kiel stakk af á lokakaflanum

THW Kiel vann 36-28 útisigur á nýliðum Bietigheim. Heimamenn leiddu 23-21 þegar 20 mínútur voru eftir en Kiel reyndist mun sterkara á lokakaflanum og landaði að lokum öruggum sigri. Leikurinn var gríðarlega kaflaskiptur en Kiel leiddi í hálfleik 16-19 eftir að hafa skorað fimm síðustu mörk fyrri hálfleiksins.

Lukas Zerbe var markahæstur Kiel með sjö mörk og Lukas Wucherpfennig skoraði einnig sjö fyrir Bietigheim.

Lemgo vann 31-27 sigur á Rúnari Sigtryggssyni og lærisveinum hans í Wetzlar eftir að hafa leitt 16-9 í hálfleik. Wetzlar náði að minnka muninn í þrjú mörk á lokakaflanum en heimamenn héldu út og fögnuðu fjögurra marka sigri.

Tim Suton var markahæstur Lemgo með átta mörk en Nikolaj Læsø skoraði sjö fyrir Wetzlar.

Balingen rúllaði yfir Eisenach

Nýliðar Balingen unnu sannfærandi 36-27 útisigur á Eisenach. Heimamenn jöfnuðu metin í 18-18 snemma í síðari hálfleik en Balingen svaraði af krafti, stakk af og vann að lokum með níu marka mun. Balingen hefur þar með unnið tvo fyrstu leiki sína á tímabilinu.

Felix Aellen var markahæstur Eisenach með sex mörk en Daniel Rebmann átti stóran þátt í sigri Balingen með sterkri frammistöðu í markinu.

Úrslit kvöldsins:

TBV Lemgo Lippe - HSG Wetzlar 31-27 (16-9)
SG BBM Bietigheim - THW Kiel 28-36 (16-19)
ThSV Eisenach - HBW Balingen-Weilstetten 27-36 (15-18)
SC Magdeburg - Füchse Berlin 36-32 (13-14)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top