Biðin er á enda. Meistaradeild kvenna 2026/27 hefst um helgina þegar öll 16 liðin stíga sín fyrstu skref á löngu ferðalagi sem þau vonast til að ljúki á FINAL4 í Búdapest næsta vor. Ríkjandi Evrópumeistarar Metz hefja titilvörnina á erfiðum útivelli gegn Storhamar í Noregi, á meðan Györ, sem laut í lægra haldi fyrir Metz í úrslitaleiknum síðasta vor, heimsækir Podravka í leik sem EHF hefur valið leik umferðarinnar. Fleiri áhugaverðar viðureignir eru á dagskrá. Tvö lið sem léku á FINAL4 síðasta vor, CSM Bucuresti og Brest, hefja bæði keppni á útivelli. CSM heimsækir Krim til Ljubljana og Brest mætir norsku meisturunum í Sola. Þá verður danskur slagur strax í fyrstu umferð þegar Nykøbing Falster tekur á móti Odense, Esbjerg heimsækir Dortmund og þýsku meistararnir HSG Blomberg-Lippe leika sinn fyrsta Meistaradeildarleik í sögu félagsins. CSM Bucuresti snýr aftur í Meistaradeildina eftir að hafa komist á FINAL4 síðasta vor í fyrsta sinn síðan 2018. Rúmenska liðið endaði þá í þriðja sæti en hefur tekið miklum breytingum í sumar. Dortmund fær ekkert auðvelt verkefni í fyrstu umferðinni þegar danska stórliðið Esbjerg kemur í heimsókn. Norsku meistararnir í Sola fá sannkallað stórverkefni í upphafi tímabilsins þegar Brest kemur í heimsókn. Tvö félög með mikla sögu í Meistaradeildinni eigast við í Podgorica þegar Buducnost tekur á móti FTC. EHF hefur valið viðureign Podravka og Györ sem leik fyrstu umferðarinnar. Nýkrýndir Evrópumeistarar Metz hefja titilvörnina í Noregi gegn Storhamar. Sögulegur dagur bíður Blomberg-Lippe þegar þýska liðið leikur sinn fyrsta Meistaradeildarleik frá upphafi og íslenskir handboltaáhugamenn hafa sérstaka ástæðu til að fylgjast með liðinu í vetur. Fyrstu umferðinni lýkur með dönskum slag þegar Nykøbing Falster tekur á móti Odense.A-RIÐILL
Krim – CSM Bucuresti | Laugardagur 5.september kl. 14:00
Bojana Popovic stýrir nú liðinu inn í sitt fyrsta heila tímabil og CSM hefur byrjað vel heima fyrir. Liðið tók brons í rúmenska Ofurbikarnum og vann fyrstu tvo leiki sína í deildinni.
Það verður sérstaklega áhugavert að fylgjast með Dariu Dmitrievu í þessum leik en hún lék með Krim tímabilin 2022/23 og 2023/24 áður en leið hennar lá annað.
Krim er hins vegar að hefja ótrúlegt 32. tímabil sitt í Meistaradeildinni. Rasmus Poulsen hefur tekið við þjálfun liðsins en verkefnið er stórt. Krim hefur ekki unnið í síðustu níu leikjum sínum í keppninni og síðasti sigurinn kom einmitt gegn CSM í Ljubljana í október 2025.
CSM hefur haft töluvert tak á innbyrðisviðureignunum í gegnum tíðina. Liðin hafa mæst 16 sinnum, CSM unnið tólf leiki, Krim þrjá og einum lokið með jafntefli.Dortmund – Esbjerg | Laugardagur 5.september kl. 14:00
Dortmund er að hefja annað tímabil sitt í röð í Meistaradeildinni og ætlar sér að byggja ofan á síðasta vetur þegar liðið komst í umspilið áður en FTC reyndist of stór hindrun.
Kay Rothenpieler hefur tekið við þjálfun liðsins, sem hefur gengið í gegnum talsverðar breytingar. Dortmund missti þýska meistaratitilinn á síðasta tímabili og tapaði einnig leiknum um þýska Ofurbikarinn fyrir upphaf þessa tímabils.
Esbjerg mætir hins vegar sem danskur meistari og Ofurbikarmeistari. Þetta verður áttunda tímabil liðsins í röð í Meistaradeildinni og það níunda alls.
Allra augu verða sem fyrr á Henny Reistad. Norska stórstjarnan varð markahæst í Meistaradeildinni á síðasta tímabili með 131 mark og vann markakóngstitil keppninnar í þriðja sinn.
Sagan er einnig með Esbjerg. Liðin hafa mæst fjórum sinnum í Meistaradeildinni og danska liðið unnið alla fjóra leikina.Sola – Brest | Sunnudagur 6.september kl. 14:00
Sola vann norska meistaratitilinn í fyrsta sinn á síðasta tímabili og er nú að hefja sitt annað tímabil í Meistaradeildinni. Fyrsta tímabilið var erfitt og vann liðið aðeins einn leik, 33:24 gegn Podravka í lokaumferðinni.
Camilla Herrem verður áfram lykilmaður norska liðsins eftir að hafa verið markahæst hjá Sola með 57 mörk síðasta vetur.
Brest kemur hins vegar inn í tímabilið eftir afar sterkan síðasta vetur. Liðið varð franskur meistari og sneri aftur á FINAL4 í fyrsta sinn síðan tímabilið 2020/21.
Miklar breytingar hafa þó orðið á franska liðinu. Tomáš Hlavatý hefur tekið við þjálfun liðsins og er fyrsti erlendi aðalþjálfarinn í sögu Brest. Þá er Anna Vyakhireva farin frá félaginu eftir að hafa skorað 117 mörk í Meistaradeildinni á síðasta tímabili.
Liðin mættust tvisvar á síðasta tímabili og Brest vann báða leikina. Síðari viðureignin endaði með sannfærandi 36:25 sigri franska liðsins.Buducnost – FTC | Sunnudagur 6.september kl. 14:00
Buducnost er að hefja sitt 32. tímabil í efstu Evrópukeppninni og ekkert félag hefur leikið fleiri leiki í keppninni. Fyrir fyrstu umferðina stendur Buducnost í 348 leikjum.
Síðasta tímabil var hins vegar erfitt. Liðið vann aðeins einn leik í Meistaradeildinni og kemur inn í tímabilið eftir fimm töp í röð í keppninni.
FTC ætlar sér aftur á móti mun meira. Ungverska liðið lék til úrslita árið 2023 en hefur síðan fallið úr leik í átta liða úrslitum þrjú tímabil í röð.
Jesper Jensen er að hefja sitt annað tímabil við stjórnvölinn og hefur fengið öflugan liðsstyrk. Þar ber meðal annars að nefna Elizabeth Omoregie, sem kemur frá CSM Bucuresti eftir að hafa skorað 108 mörk á síðasta tímabili og endað í fimmta sæti markalista Meistaradeildarinnar.
FTC kemur þó inn í leikinn eftir 24:30 tap gegn Györ í ungverska Ofurbikarnum.B-RIÐILL
Podravka – Györi | Laugardagur 5.september kl. 16:00
Podravka er að hefja sitt 25. tímabil í Meistaradeildinni og það þriðja í röð. Króatíska liðið hefur komist upp úr riðlakeppninni síðustu tvö tímabil en fallið úr leik í umspilinu í bæði skiptin.
Györ hefur unnið Meistaradeildina sjö sinnum og er sigursælasta félag keppninnar. Ungverska stórveldið var aðeins einum leik frá þriðja titlinum í röð síðasta vor en tapaði úrslitaleiknum gegn Metz.
Györ hefur síðan styrkt hópinn enn frekar. Sarah Bouktit, sem varð Evrópumeistari með Metz og var valin verðmætasti leikmaður FINAL4 síðasta vor, gekk til liðs við félagið í sumar.
Innbyrðis tölfræðin er sláandi. Györ og Podravka hafa mæst tíu sinnum í Evrópukeppni og Györ hefur unnið alla tíu leikina.
Ivica Obrvan, þjálfari Podravka, gekk raunar svo langt fyrir leikinn að segja að þegar allir væru heilir hefði Györ mögulega sett saman besta leikmannahóp síðasta áratugar – jafnvel einn þann besta frá upphafi.Storhamar – Metz | Laugardagur 5.september kl. 16:00
Metz vann sinn fyrsta Meistaradeildartitil síðasta vor og er nú að hefja sitt 20. tímabil í keppninni og það ellefta í röð.
Storhamar er hins vegar að hefja sitt fjórða tímabil eftir að hafa fyrst tekið þátt 2022/23. Síðasta tímabil var það slakasta hjá norska liðinu til þessa þar sem það komst ekki upp úr riðlakeppninni í fyrsta sinn.
Þessi lið þekkja hvort annað vel eftir síðasta tímabil. Metz vann báðar viðureignirnar en Storhamar gerði Evrópumeisturunum lífið erfitt. Fyrri leikurinn fór 27:24 og sá síðari 29:27.
Reynslan á þjálfarabekkjunum er sömuleiðis mikil. Kenneth Gabrielsen er að hefja sitt sjöunda tímabil hjá Storhamar á meðan Emmanuel Mayonnade hefur stýrt Metz frá árinu 2015.
Metz er því stórt nafn að fá í heimsókn strax í fyrstu umferð, en fyrri leikir liðanna sýna að franska liðið má ekki vanmeta Norðmennina.Blomberg-Lippe – Gloria Bistrita | Sunnudagur 6.september kl. 12:00
Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir eru báðar í leikmannahópi þýsku meistaranna og verða því meðal íslenskra leikmanna sem fá tækifæri til að spreyta sig á stærsta sviði evrópsks félagsliðahandbolta í vetur.
Þær hafa þegar látið til sín taka í upphafi tímabilsins. Í 40:28 sigri Blomberg-Lippe gegn Metzingen á miðvikudagskvöld skoraði Elín Rósa fimm mörk og Díana Dögg fjögur, þar af tvö síðustu mörk leiksins.
Blomberg varð þýskur meistari í fyrsta sinn á síðasta tímabili og tryggði sér þar með sæti á stærsta sviðinu eftir tvö tímabil í röð í Evrópudeildinni.
Fyrsti mótherjinn verður Gloria Bistrita, sem er sjálft aðeins að hefja sitt þriðja tímabil í Meistaradeildinni en hefur þegar sýnt að félagið ætlar sér stóra hluti.
Gloria kom nokkuð á óvart með því að komast í átta liða úrslit síðasta vetur og Carlos Viver er nú að hefja sitt annað tímabil sem þjálfari liðsins.
Töluverðar breytingar hafa þó orðið á rúmenska liðinu. Níu leikmenn yfirgáfu félagið í sumar og sjö nýir komu inn.
Liðin hafa aldrei áður mæst í Evrópukeppni og því verður skrifaður nýr kafli í sögu beggja félaga á sunnudaginn – með Díönu Dögg og Elínu Rósu í íslensku aðalhlutverki hjá nýliðum Blomberg-Lippe.Nykøbing Falster – Odense | Sunnudagur 6.september kl. 14:00
Þetta eru einu tvö liðin frá sama landi sem lentu saman í riðli og þó þau þekkist auðvitað afar vel úr dönskum handbolta hafa þau aldrei áður mæst í Evrópukeppni.
Odense hafði algjöra yfirburði í innbyrðisleikjunum á síðasta tímabili og vann alla fjóra leiki liðanna í dönsku deildinni, þar á meðal báða leikina í undanúrslitum.
Nykøbing er að hefja sitt þriðja tímabil í Meistaradeildinni eftir að hafa áður tekið þátt 2017/18 og 2024/25.
Odense hefur mun meiri reynslu. Þetta verður sjöunda tímabil liðsins í röð og það áttunda alls í Meistaradeildinni.
Elma Halilcevic og Nikita van der Vliet verða í kunnuglegu umhverfi en báðar hafa áður leikið með Nykøbing.
Odense hefur styrkt sig mikið fyrir tímabilið og er talið meðal þeirra liða sem geta farið langt í keppninni. Danski slagurinn verður því áhugaverður mælikvarði strax í fyrstu umferð á hversu vel liðinu hefur tekist að koma nýjum og breyttum leikmannahópi saman.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.