Myndi vilja Kötlu frænku hans Matta Jochum samstarfsfélaga míns
Sævar Jónasson

Olís-deild karla hófst meðan Olís-deild kvenna hefst á morgun.

Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deildirnar og hefur sent sömu tíu spurningarnar á alla þjálfara deildarinnar í karla og kvenna flokki.

Nú er komið að því að sjá hvað þjálfari Fram í Olís-deild kvenna Haraldur Þorvarðarson hefur að segja.

Ertu ánægð/ur með hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið?

Já ég er ánægður, við æfðum vel og sluppum mest megnis við meiðsli sem er yfirleitt kostur.

Hverjar voru áherslur liðsins á undirbúningstímabilinu?

Áherslur voru eins og hjá flestum að vinna í okkar líkamlegu þáttum sem og að líma saman varnar og sóknarleik sem við værum ánægð með.

Hvernig er staðan á leikmannahópnum rétt fyrir mót?

Staðan er góð , lítið um meiðsli og stelpurnar ferskar og til í slaginn.

Hvernig metur þú þær mannabreytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar?

Við fáum aukna möguleika bæði varnar og sóknarlega með þeim laikmönnum sem komu inn fyrir þetta tímabil þannig að það er gott fyrir okkur.

Hverjar telur þú vera helstu áskoranir þínar og liðsins í vetur?

Okkar langar að keppast við að vera við við toppinn og geta keppt um titla. Ætli það verði ekki það sem verður mesta challengið yfir tímabilið. Núna er áskorunin hinsvegar búin að vera sú að slípa alla hluti leiksins hjá okkur.

Hverjar eru væntingar þínar til tímabilsins?

Ég hef væntingar um að Fram spili skemmtilegan bolta og árangursríkan og það leiði til góðra hluta.

Hverju ert þú spennt/astur fyrir tímabilinu?

Spenntur að sjá hvernig nýtt fyrirkomulag mun virka í vetur en svo er maður alltaf spenntur að sjá hvaða ungir leikmenn koma upp og taka sviðið, vonandi frá okkur.

Ef þú mættir velja þér einn leikmann úr öðru liði í deildinni til að fá í þitt lið - Hver væri það og afhverju?

Ég myndi vilja Kötlu frænku hans Matta Jochum samstarfsfélaga míns en þá hættir hann kannski að væla um að fá hana í Fram.

Ef þú mættir breyta einni reglu í handboltanum - Hver yrði breytingin?

Út með miðju.

Hvaða lið telur þú að verði deildarmeistari í vetur?

Valur

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top