Olís-deild karla er farin af stað og Olís-deild kvenna og Grill66- deildirnar hefjast um helgina. Boltinn er farinn að rúlla í Evrópu. Óvænt félagaskipti síðustu daga og nýtt félag í Grill66-deildinni. Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Kiddi Bomba fóru yfir allt það helsta í Rapyd stúdíóinu. Valur slapp með skrekkinn á Selfossi í gær en hafði að lokum betur með fjórum mörkum 34-30 á meðan KA vann sannfærandi níu marka sigur gegn HK í Kórnum. Hægt er að hlusta á nýjasta þátt Handkastsins á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.