Það styttist og styttist í komandi tímabil í Olís-deildum karla og kvenna. Olís-deild karla hefst fimmtudaginn 3.september á meðan Olís-deild kvenna hefst laugardaginn 5.september. Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deildirnar og hefur sent sömu tíu spurningarnar á alla þjálfara deildarinnar í karla og kvenna flokki. Nú er komið að því að sjá hvað þjálfari KA/Þórs í Olís-deild kvenna Jónatan Magnússon hefur að segja. Ertu ánægð/ur með hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið? Eins og gengur og gerist stundum þá hefur undirbúningstímabilið verið misjafnt. Við erum í raun með nýtt lið í höndunum, 11 leikmenn sem spiluðu í fyrra eru ekki með í ár og fimm nýir leikmenn inn. Við höfum notað tímann til að reyna að aðlaga okkur á því. Það verk er hafið en er svo sannarlega ekki lokið. Hvernig er staðan á leikmannahópnum rétt fyrir mót? Staðan á hópnum í heild sinni er ágæt en mætti þó vera betri. Búið að vera smá meiðsli eins og gengur og gerist og svo erum við líka með leikmenn sem eru lengi frá, nokkrar eru óléttar svo það eru jákvæðar ástæður, en einnig vegna langtíma meiðsla. Matea Lonac meiddist illa í fyrra og verður lengi frá auk þess að Rakel Sara sleit aftur krossband. Hvernig metur þú þær mannabreytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar? Ég met þær þannig að við erum mjög ánægð þá leikmenn sem við höfum fengið til liðs okkar. Þær eiga það allar sameiginlegt að vera gríðarlega metnaðarfullar og vilja bæta sig. Þær eru á mismunandi aldri. Við fengum Ingibjörgu Hauksdóttir 2007 markmenn sem hefur verið að spila í Noregi. Hún mun mynda teymi með Ástrós sem er líka “nánast” ný inn, þrátt fyrir að hafa komið aðeins inn í fyrra, þá nýbúin að eignast barn. Joan og Agatha frá Færeyjum þær eru báðar 2006 módel. Svo fengum við Lenku sem er fædd árið 2000 sem frábæra viðbót á hægri vænginn okkar og mun styrkja okkur mikið. Aldís Ásta er svo þekkt stærð og við bindum miklar vonir við hana, en hún er þó ekki væntanlega strax inn á dúkinn enda nýorðin móðir, en hún mun hjálpa okkur gríðarlega þegar hún kemur inn, enda frábær fyrirmynd fyrir okkar unga lið. Ekki má gleyma því að við fengum líka tvær alls ekki ungar en “efnilegar” til að hjálpa okkur, Kata Vil og Kolbrún Gígja hafa dustað rykið af skónum og eru til taks. Hverjar telur þú vera helstu áskoranir þínar og liðsins í vetur? Hópurinn okkar er fámennri heldur en í fyrra, svo það er auðvelt að segja að stærsta áskorunin okkar er lítill hópur. Vonandi náum við að halda hópnum eins mikið og unnt er meiðslafríum en það verður krefjandi verkefni. Það mun taka tíma að slípa hópinn saman og það mun reyna á hópinn líka. Mínar væntingar eru þær að liðið og stelpurnar muni bæta sig. Frekar leiðinlegt svar en það er samt satt. Við vitum að þegar svona margar fara á milli tímabila, þá tekur tíma að stilla allt af. Ég hinsvegar hef mikla trú á hópnum og vænti þess að við munum gera flotta hluti. Ég get líka sagt að ég er með miklar væntingar til stuðnings fólksins okkar. Það hefur verið vel mætt hjá okkur síðastliðin tvö tímabil og vænti þess og virkilega vona að við fáum fólkið með okkur í ár líka því við þurfum á því að halda. Í blússandi stemmningu þá er fátt skemmtilegra en að spila á okkar heimavelli. Held ég verði að segja fyrirkomulagið. Nýtt fyrirkomulag og fleiri leikir á móti fleirum anstæðingum verður held ég skemmtilegt. Það var orðið frekar “krefjandi” fyrir alla að undirbúa fjórða leikinn við sama lið. Ef þú mættir velja þér einn leikmann úr öðru liði í deildinni til að fá í þitt lið - Hver væri það og afhverju? Á síðasta tímabili nefndi ég Vigdísi Örnu frænku mína, en mér varð ekki að ósk minni. Andrea Jakobs fór í ÍBV fyrir þetta tímabil svo ég held ég verði að segja hún. Ef hún verður leið á Herjólfi þá er hún svo sannarlega velkomin norður og yrði ekki verra ef hún myndi ná að draga Robba sinn með aftur “heim”. Lengja liðs leikhléin. Þessi eina mínúta líður alltaf of hratt fyrir þjálfara sem hafa mikið að segja. Ég nenni ekki að fá fleiri gul spjöld fyrir að vera of lengi að “spjalla”. Hvaða lið telur þú að verði deildarmeistari í vetur? ÍBV, þær virka ógnarsterkar. Held að þær misstígi sig í fyrsta leik enda mikil pressa á þeim, en verði eftir það erfiðar við að eiga.
Hverjar eru væntingar þínar til tímabilsins?
Hverju ert þú spennt/astur fyrir tímabilinu?
Ef þú mættir breyta einni reglu í handboltanum - Hver yrði breytingin?

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.