Ólöf María tekur skóna af hillunni

Ólöf María Stefánsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild ÍBV.

Ólöf María er alin upp hjá Fram en færði sig svo til Vals í 3. flokki. Hún flutti svo til Eyja árið 2020 þegar hún og fyrrverandi unnusti hennar gengu bæði til liðs við ÍBV.

Með ÍBV lék hún frá 2020 til 2023 en þá skipti hún yfir í Gróttu og lék um stund með þeim. Fyrir rúmu ári eignaðist hún barn en nú er ljóst að hún er komin aftur á völlinn.

"Við bjóðum Ólöfu Maríu velkomna og hlökkum til samstarfsins" segir í tilkynningunni frá ÍBV.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top