Bergenska norskan finnst mér fallegasta tungumál í heimi

Hinn 27 ára gamli Eyjapeyji Jörgen Freyr Ólafsson Naabye hefur búið í Noregi síðan sumarið 2023 og starfað við þjálfun í Haugesund hjá Rival Håndballklubb og Haugesund Toppidrettsgymnas sem er framhaldsskóli með áherslu á íþróttir.

Jörgen hellti sér ungur út í þjálfun og þjálfaði hjá Haukum og FH áður en hann flutti búferlum til Noregs.

Handkastið ákváð að heyra aðeins í Jörgen og láta hann segja okkur aðeins frá aðdragandanum að hann fór til Noregs, dvölinni þar og hvernig lífið gengur fyrir sig í Noregi.

"Ég flyt til Noregs ásamt Sigrúnu og tveimur börnum sumarið 2023. Ferlið gekk frekar hratt fyrir sig. Ég fór í viðtal 28. maí og var svo floginn út til Noregs til að skoða aðstæður, hitta fólkið og eiginlega fá tilfinningu fyrir verkefninu. Ég var sjálfur í smá klípu á þessum tíma. Það var virkilega þungt fyrir mig að sætta mig við að halda ekki áfram með FH-kvennaliðið. Ég var orðinn harður FH-ingur og naut þess gríðarlega að vinna í Krikanum. Einn maður sem ég á alltaf miklar þakkir fyrir gott samstarf er Ásgeir Jónsson, sem er í dag mjög góður vinur minn"

"En ég hafði lengi horft til Noregs og alltaf átt þann draum að búa þar. Bergenska norskan fannst mér – og finnst enn – fallegasta tungumál í heimi. Mér fannst líka norskur kvennahandbolti mjög áhugaverður og spennandi. Við fluttum til Haugesund og ég tók við starfi hjá Rival Håndballklubb og Haugesund Toppidrettsgymnas, sem er framhaldsskóli með áherslu á íþróttir. Klúbburinn var með skýra framtíðarsýn og plön um hvernig ætti að byggja verkefnið upp. Markmiðið var að koma liðinu upp í 3. deild á þremur árum og síðan, eftir 5–8 ár, að spila í 2. deild. Ég heillaðist af þessu verkefni og hugsaði að þetta gæti verið fínt fyrir mig"

"Klúbburinn byrjaði í 4. deild og varaliðið í 5. deild. Það fyrsta sem við gerðum var að fá Sigrúnu (Jóhannsdóttur, unnustu Jörgens) til að spila með okkur og það heppnaðist mjög vel. Aðalliðið fór svo upp í 3. deild, varaliðið fór upp í 4. deild og unglingaliðið vann sína deild líka. Þar með var þriggja ára markmið náð á aðeins einu ári. Þá var ákveðið að sækja tvo íslenska leikmenn til viðbótar. Þær Amelia Dís Einarsdóttir og Þóra Björg Stefánsdóttir frá IBV komu til okkar og höfðu virkilega góð áhrif á klúbbinn. Leikmenn lyftust upp á hærra plan og ég held að bæði Þóra og Amelía hafi grætt helling á þessu verkefni"

"Liðið er vel mannað hjá mér og 2. deildin byrjaði vel hjá okkur með níu marka sigri á laugardaginn 29. ágúst 2026. Annars er lífið bara gott hjá okkur. Okkur líður mjög vel hér í Haugesund og við getum í raun ekki kvartað. Við eigum fullt af góðum vinum hér og stelpurnar eru orðnar 97% norskar í háttum og siðum. Stjórn félagsins er hrikalega metnaðarfull fyrir verkefninu sem er í gangi og ég er mjög heppinn með Ólaf Hauk Gíslason, sem tók við sem formaður félagsins í maí. Hann hefur sett nýjan standard á klúbbinn og er einstaklega skemmtilegur maður að vinna með. Maður lærir á hverjum degi af honum"

"Ég er á síðasta ári á samningi og það verður gaman að sjá hvernig þetta ár þróast. Þetta er fjórða árið mitt hér og ég hef mikinn áhuga á að semja áfram við Rival Håndballklubb. Maður skoðar að sjálfsögðu allt sem kemur upp, en klúbburinn hér verður í forgangi. Ef einhverjar íslenskar stelpur hafa áhuga á að prófa þetta ævintýri þá er bara að hafa samband. Við skoðum það og sjáum hvað hægt er að gera" sagði Eyjapeyinn geðþekki að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top