Marsenic yfirgefur Berlín eftir níu ára veru
Andreas Gora /AFP

Mijajlo Marsenić yfirgefur Füchse Berlin eftir yfirstandandi tímabil þegar samningur hans við þýska stórliðið rennur út næsta sumar. Marsenić hefur leikið með Füchse frá árinu 2018 og hefur á þeim tíma orðið einn af lykilmönnum og leiðtogum liðsins.

Marsenić er 33 ára gamall línumaður frá Serbíu. Hann er 2,02 metrar á hæð og hóf atvinnumannaferilinn hjá Partizan í Belgrad áður en leiðin lá til Metalurg Skopje og síðar Vardar. Með Vardar varð hann meðal annars Evrópumeistari árið 2017.

Hann gekk í raðir Füchse sumarið 2018 og hefur síðan þá leikið yfir 300 leiki fyrir félagið. Á þeim tíma hefur hann tekið þátt í einu besta tímabili í sögu félagsins.

Marsenić varð Evrópudeildarmeistari með Füchse árið 2023 og þýskur meistari árið 2025, þegar Berlínarliðið varð þýskur meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins. Hann hefur einnig orðið bikarmeistari og unnið þýska ofurbikarinn tvisvar með liðinu. Füchse lék jafnframt til úrslita í Meistaradeild Evrópu árið 2025.

Félagið hefur ákveðið að framlengja ekki samning hans og verður þetta tímabil því hans það síðasta í Berlín. Bob Hanning, forseti félagsins, segir Marsenić hafa verið mikilvægan bæði innan vallar og utan og að hann verði áfram hluti af sögu félagsins. Til marks um stöðu hans hjá félaginu verður treyja hans hengd upp í höllinni þegar hann hættir.

Marsenić kveður því Berlín eftir níu ár þar sem hann hefur verið hluti af uppgangi Füchse úr sterku Bundesliguliði yfir í eitt af stórliðum Evrópu.

Franski línumaðurinn Théo Monar, sem leikur nú með Industria Kielce, hefur þegar verið kynntur sem arftaki Marsenić og skrifað undir samning við Füchse til ársins 2030.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top