Er á því að Katla María hefði valið Selfoss framyfir Val
Eyjólfur Garðarsson

Ein ótrúlegustu úrslit síðari ára í Olís-deild kvenna litu dagsins ljós á Hlíðarenda um helgina þegar Selfoss vann afar sannfærandi 25-21 sigur á Íslands- og bikarmeisturum Vals.

Sigurinn verður enn ótrúlegri þegar aðdragandinn er skoðaður. Selfoss féll úr Olís-deildinni síðasta vor og undirbjó sig því fyrir tímabil í Grill 66-deildinni. Það breyttist hins vegar með litlum fyrirvara þegar Víkingur dró lið sitt úr Olís-deildinni.

Selfyssingum var boðið laust sæti 27. ágúst og ákváðu að þiggja það. Aðeins níu dögum síðar stóð liðið því á Hlíðarenda gegn ríkjandi Íslands, deildar- og bikarmeisturum Vals í 1. umferð Olís-deildarinnar.

Það virtist þó ekki trufla Selfyssinga hið minnsta. Gestirnir voru með yfirhöndina nánast allan leikinn, leiddu 14-7 í hálfleik og fögnuðu að lokum fjögurra marka sigri, 25-21.

Rætt var um ótrúlegan sigur Selfoss í nýjasta þætti Handkastsins sem tekinn var upp í Rapyd-stúdíóinu. Þar barst talið meðal annars að Kötlu Maríu Magnúsdóttur, leikmanni Vals. Katla María gekk nýverið í raðir Vals frá Holstebro í Danmörku en hún er uppalin á Selfossi og lék síðast með Selfyssingum tímabilið 2024/25 áður en hún hélt út í atvinnumennsku.

Stymmi klippari velti því upp hvort óvænt sæti Selfoss í Olís-deildinni hefði getað breytt ákvörðun Kötlu Maríu ef það hefði legið fyrir fyrr í sumar.

„Ég velti fyrir mér hvort Katla María hefði valið að fara í Selfoss ef Selfoss hefði verið komið með sæti í Olís-deildinni áður en hún samdi við Val. Væri hún ekki leikmaður Selfoss í dag ef það hefði verið þannig?“ spurði Stymmi klippari Kristin Björgúlfsson, Kidda Bomba, gest þáttarins.

„Ég er nokkuð viss um að hún hefði alltaf farið í Selfoss ef það hefði verið í boði þegar hún samdi við Val og liðið væri í Olís-deildinni,“ svaraði Kiddi.

Katla María skoraði eitt mark fyrir Val gegn sínum gömlu félögum á laugardaginn. Hulda Hrönn Bragadóttir var markahæst Selfyssinga með sex mörk en Harpa Valey Gylfadóttir og Perla Ruth Albertsdóttir skoruðu fimm mörk hvor.

Frekari umræðu um 1. umferð Olís-deildar kvenna má nálgast í nýjasta þætti Handkastsins á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top