Framlag ríkisins til uppbyggingar nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal verður aukið verulega samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027. Gert er ráð fyrir 2.422 milljónum króna til verkefnisins á næsta ári, samanborið við 1.238 milljónir í fjárlögum þessa árs. Um er að ræða nær tvöföldun framlagsins milli ára og skýr merki um að stjórnvöld hyggist halda áfram uppbyggingu hallarinnar af krafti. Mikilvægt er að tímalína verkefnisins haldist, ekki síst með hliðsjón af þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem Ísland hefur þegar tekið á sig. Ísland verður ásamt Danmörku og Noregi gestgjafi heimsmeistaramóts karla í handbolta árið 2031 en Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, úthlutaði þjóðunum þremur mótinu árið 2024. Gert er ráð fyrir að hluti mótsins fari fram hér á landi og hefur uppbygging nýrrar þjóðarhallar verið talin ein af grundvallarforsendum þess að Ísland geti staðið við sinn hluta mótshaldsins. Samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum verða tveir riðlar og einn milliriðill spilaðir á Íslandi, sem þýðir að átta landslið (miðað við núverandi keppnisfyrirkomulag) munu leika hér á landi meðan á mótinu stendur. Þjóðarhöllin hefur því mun víðtækara hlutverk en að leysa úr langvarandi aðstöðuvanda íslenskra innanhússíþrótta. Hún er jafnframt forsenda þess að Ísland geti tekið á móti stórum alþjóðlegum íþróttaviðburðum með þeim kröfum sem gerðar eru til áhorfendafjölda, aðstöðu keppenda, fjölmiðla og mótshalds. Áætlanir gera ráð fyrir að höllin rúmi allt að 8.600 áhorfendur í sæti og allt að 12.000 manns á öðrum viðburðum. Aukin fjárheimild í fjárlagafrumvarpi næsta árs skiptir því verulegu máli. Eftir því sem nær dregur HM 2031 verður svigrúmið til frekari tafa minna enda þarf höllin ekki aðeins að vera risin fyrir mótið heldur einnig fullbúin og gangsett til að uppfylla kröfur IHF áður en keppni hefst. HM karla árið 2031 verður í annað sinn sem heimsmeistaramót karla í handknattleik fer að hluta eða öllu leyti fram á Íslandi en mótið fór síðast fram hérlendis árið 1995. Verði núverandi áform að veruleika verður mótið 2031 hins vegar haldið við allt aðrar aðstæður, í nýrri þjóðarhöll sem gæti markað tímamót bæði fyrir innanhúsíþróttir á Íslandi og möguleika þjóðarinnar til að halda stór alþjóðleg íþróttamót til framtíðar. Gera má ráð fyrir að framkvæmdir við Þjóðarhöllina hefjist á næstu vikum. Þegar niðurstaða samkeppni um hönnun hallarinnar var kynnt í sumar var jafnframt fullyrt að stefnt væri að því að framkvæmdir hæfust nú í haust. Næstu vikur gætu því orðið mikilvægur vendipunktur í verkefninu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.