Lena Margrét lögleg gegn Stjörnunni
Kristinn Steinn Traustason

Lena Margrét Valdimarsdóttir hefur fengið félagaskipti yfir í Fram og verður því lögleg með liðinu þegar það heimsækir Stjörnuna í 2. umferð Olís-deildar kvenna á föstudaginn.

Lena Margrét, sem er 26 ára örvhent skytta, snýr aftur til Fram eftir eins árs dvöl hjá Skara HF í sænsku úrvalsdeildinni. Hún yfirgaf Fram síðasta sumar eftir tvö tímabil hjá félaginu en hafði þar áður leikið með Stjörnunni í tvö ár.

Hún var ekki komin með leikheimild þegar Fram hóf tímabilið á sigri gegn Gróttu á heimavelli í 1. umferðinni. Framarar geta hins vegar teflt henni fram gegn hennar gamla félagi á föstudaginn.

Leikur Stjörnunnar og Fram hefst klukkan 18:00 á föstudaginn en tvíhöfði verður í Garðabænum á föstudaginn því Stjarnan fær Hauka í heimsókn klukkan 20:15 í Olís-deild karla.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top