Segir hver mistök vega þungt í Meistaradeildinni
BO AMSTRUP / AFP

Álaborg hefur leik í Meistaradeild Evrópu þegar liðið tekur á móti Paris Saint-Germain. Simon Dahl, þjálfari dönsku meistaranna, segir að nýtt keppnisfyrirkomulag geri það að verkum að liðin hafi lítið svigrúm til mistaka.

Leikur Álaborgar og PSG hefst klukkan 16:45 í dag.

Liðum í Meistaradeildinni hefur verið fjölgað úr 16 í 24. Í stað tveggja átta liða riðla er nú leikið í sex fjögurra liða riðlum og því aðeins um sex leiki að ræða í fyrsta hluta keppninnar.

„Nú er ekki hægt að nota fyrstu leikina til að finna taktinn. Það getur haft afdrifaríkar afleiðingar að tapa í fyrstu eða annarri umferð,“ sagði Dahl við TV 2 Sport.

Tvö efstu lið hvers riðils komast áfram í milliriðla en lið getur verið úr leik í Meistaradeildinni eftir aðeins sex leiki. Í eldra fyrirkomulagi léku liðin 14 leiki í riðlakeppninni og höfðu því mun meiri möguleika á að vinna upp slæma byrjun.

Dahl sér þó einnig jákvæðar hliðar á breytingunum. Álagið og spennan aukast þar sem liðin þurfa að vera tilbúin frá fyrstu mínútu og hver leikur vegur þungt í baráttunni um áframhaldandi þátttöku.

Lið sem enda í þriðja eða fjórða sæti riðlanna halda Evrópuævintýrinu áfram í Evrópudeildinni. Markmið Álaborgar er þó vitaskuld að komast langt í Meistaradeildinni og heimaleikurinn gegn PSG gæti strax gefið góða vísbendingu um stöðu liðsins. Liðið fór alla leið í Final 4 á síðustu leiktíð en tapaði í undanúrslitum keppninnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top