Færeyski markvörðurinn Maria Beder er farin frá Íslandi og ólíklegt þykir að hún leiki meira með Íslands-, deildar- og bikarmeisturum Vals á yfirstandandi tímabili. Samkvæmt heimildum Handkastsins óskaði Beder á dögunum eftir því að fá að yfirgefa Val og hélt hún heim til Færeyja á mánudaginn. Beder kom til Íslands í byrjun ágúst og gekk til liðs við Val frá H71 í Færeyjum. Hún tók þátt í undirbúningstímabili liðsins og var í kjölfarið formlega kynnt sem nýr leikmaður félagsins. Dvölin að Hlíðarenda virðist því ætla að verða afar stutt. Beder lék tvo opinbera leiki með Val. Hún var í marki liðsins í Meistarakeppni HSÍ og einnig í fyrstu umferð Olís-deildar kvenna gegn Selfossi. Valur tapaði báðum leikjunum nokkuð sannfærandi. Þegar Beder var kynnt til leiks hjá Val sagði Anton Rúnarsson, þjálfari liðsins, að hún væri efnilegur markvörður sem hefði staðið sig vel bæði með H71 og yngri landsliðum Færeyja. Var henni ætlað að mynda markvarðapar með Hafdísi Renötudóttur í vetur. Beder er fædd árið 2006 og hefur leikið með yngri landsliðum Færeyja. Hún tók meðal annars þátt á HM U20 ára landsliða í Kína í sumar. Málið í vinnslu hjá Val Valur hefur ekki tilkynnt opinberlega um brottför Beder þegar þetta er skrifað. Handkastið leitaði viðbragða hjá forráðamönnum Vals vegna málsins. Fannar Þorbjörnsson, formaður handknattleiksdeildar Vals, vildi ekki tjá sig nánar um stöðuna en sagði málið vera í vinnslu hjá félaginu. Einnig var leitað viðbragða hjá Antoni Rúnarssyni, þjálfara Vals, en hann hefur ekki svarað fyrirspurn Handkastsins um málið. Samkvæmt heimildum Handkastsins er ólíklegt að Beder snúi aftur til Íslands og leiki meira með Val á yfirstandandi tímabili en samkvæmt heimildum Handkastsins er hún í viðræðum við sitt fyrrum félag, H71 um að leika með liðinu á tímabilinu. Kvennalið Vals á tvo erfiða leiki fyrir höndum en Valur fær ÍBV í heimsókn í stórleik 2.umferðarinnar á sunnudaginn. Í 3.umferðinni fer liðið síðan á Ásvelli og mætir þar Haukum. ÍBV og Haukum er spáð góðu gengi á tímabilinu og hófu tímabilið á sigrum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.