Tvö stór skörð í liði nýliðanna – Von á þeim aftur fljótlega
Eyjólfur Garðarsson

Nýliðar Gróttu voru án tveggja lykilleikmanna þegar liðið hóf leik í Olís-deild kvenna með 30-24 tapi gegn Fram í Lambhagahöllinni á laugardaginn. Katrín Helga Sigurbergsdóttir, fyrirliði liðsins, og Ída Margrét Stefánsdóttir voru báðar fjarri góðu gamni.

Grótta hélt vel í Fram lengi vel í fyrsta leik sínum eftir endurkomuna í Olís-deildina. Fram leiddi 13-11 í hálfleik en Grótta jafnaði metin í 16-16 í síðari hálfleik áður en heimakonur tóku völdin og unnu að lokum sex marka sigur, 30-24.

Tvö stór skörð voru þó höggvin í lið nýliðanna. Fyrirliðinn Katrín Helga var ekki með og þá vantaði einnig Ídu Margréti, sem var markahæsti leikmaður Gróttu í Grill 66-deildinni á síðustu leiktíð.

Fjarvera þeirra virðist þó ekki ætla að verða langvarandi.

„Katrín Helga og Ída eru báðar frá en við búumst við þeim í næstu leikjum. Þetta er ekkert alvarlegt en við tökum enga sénsa í byrjun móts,“ sagði Júlíus Þórir Stefánsson, þjálfari Gróttu, í samtali við Handkastið.

Júlíus Þórir var sjálfur ekki á hliðarlínunni gegn Fram þar sem hann tók út leikbann og því voru nýliðarnir án þjálfarans auk tveggja lykilleikmanna í fyrsta leik tímabilsins.

Grótta heimsækir Selfoss í annarri umferð Olís-deildarinnar á föstudaginn. Í kjölfarið tekur liðið á móti Stjörnunni í þriðju umferð áður en komið verður að fyrstu landsleikjapásu tímabilsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top