Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, var gríðarlega ánægður eftir nauman 26-25 sigur á Víkingi í Olís-deild karla í kvöld. KA leiddi allan leikinn en þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum eftir öfluga endurkomu Víkinga. „Ég er gríðarlega ánægður með sigurinn. Tvö frábær stig og það er það sem skiptir öllu máli. Ég er ánægður með að vinna,“ sagði Andri Snær eftir leik. KA byrjaði af miklum krafti og komst meðal annars í 9-1. Sóknarleikur liðsins hikstaði hins vegar verulega á síðasta stundarfjórðungi fyrri hálfleiks og Víkingar minnkuðu muninn í þrjú mörk fyrir hlé. „Við erum yfir allan leikinn, byrjum mjög vel og komum okkur í gott forskot. Það var alveg ljóst að Víkingar myndu koma með áhlaup en mér fannst við detta alltof langt niður með okkar sóknarplan síðasta korterið í fyrri hálfleik. Við skoruðum þrjú mörk, vorum hægir og staðir og tókum lélegar ákvarðanir og lélegar árásir.“ KA beitti sjö á móti sex í sókninni í síðari hálfleik og náði þannig betri takti. Andri Snær var jafnframt ánægður með varnarleik liðsins og frammistöðu Ágústs Elí Björgvinssonar í markinu. „Það kom okkur aðeins aftur inn í leikinn sóknarlega. Varnarlega vorum við mjög fínir og Ágúst Elí varði mjög vel. Þetta var erfiður en krefjandi sigur. Mikið hrós á Víking, þeir eru seigir og mjög gott lið.“ Næst bíður KA heimaleikur gegn grönnum sínum í Þór. Andri Snær segir mikla eftirvæntingu ríkja fyrir Akureyrarslagnum. „Það er bara geggjað. Sá leikur leggst mjög vel í okkur og við erum mjög spenntir og getum í rauninni ekki beðið. Þetta er leikur sem bæði lið elska að spila og við í KA erum mjög spenntir. Við verðum svo sannarlega tilbúnir í þann leik.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.