Guðmundur Bragi fór á kostum – sex mörk hjá Óðni Þór
Instagram

Guðmundur Bragi Ástþórsson fór á kostum með Bregenz í austurrísku úrvalsdeildinni í gær en hann var markahæsti maður vallarins með átta mörk. Fjöldi annarra íslenskra leikmanna var í eldlínunni víðs vegar um Evrópu.

Guðmundur Bragi skoraði átta mörk fyrir Bregenz og Jón Ómar Gíslason bætti við tveimur. Guðmundur Bragi lét sérstaklega til sín taka í síðari hálfleik þar sem hann skoraði fimm marka sinna, þar á meðal fyrstu tvö mörk Bregenz eftir hlé. Bregenz náði mest níu marka forskoti, 19-10, snemma í síðari hálfleik.

Í Sviss skoraði Óðinn Þór Ríkharðsson sex mörk fyrir Kadetten Schaffhausen í jafntefli gegn Pfadi Winterthur, 29-29. Hann var markahæstur í liði Kadetten ásamt Luka Maros og Patrik Martinovic, sem skoruðu einnig sex mörk hvor. Eftir fjóra sigra í fyrstu fjórum leikjunum í deildinni var þetta fyrsta tapaði stig Óðins Þórs og félaga á tímabilinu.

Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði þrjú mörk fyrir Alkaloid er liðið vann fjögurra marka sigur á Eurofarm Pelister 2 á útivelli, 27-31. Monsi byrjaði leikinn af krafti og komu öll þrjú mörk hans á fyrstu 20 mínútum leiksins.

Í Portúgal var Þorsteinn Leó Gunnarsson ekki í leikmannahópi Porto þegar liðið mætti Benfica. Breki Hrafn Árnason var hins vegar í leikmannahópi Benfica og kom við sögu í leiknum. Þrátt fyrir fjarveru Þorsteins Leó hafði Porto betur í leiknum 37-33 á útivelli.

Þá vann Paris Saint-Germain 30-24 sigur í frönsku úrvalsdeildinni. Bjarki Már Elísson var í liði PSG sem þurfti heldur betur að hafa fyrir sigrinum. PSG var 22-20 undir þegar rúmlega tíu mínútur voru eftir en franska stórliðið sneri leiknum algjörlega við á lokakaflanum. Parísarliðið vann síðustu rúmu tíu mínúturnar 10-2 og tryggði sér þannig sex marka sigur, 30-24.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top