Króatinn hjá Stjörnunni brotin – Frá næstu vikurnar
Sævar Jónasson

Króatíski leikstjórnandinn í liði Stjörnunnar, Dora Pajic var ekki í leikmannahópi Stjörnunnar í tapi liðsins gegn Fram á heimavelli í 2.umferð Olís-deildar kvenna á föstudagskvöldið. Fram vann leikinn með átta mörkum 35-28.

Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Stjörnunnar staðfesti í samtali við Handkastið að ástæðan væri einföld.

Dora varð fyrir því óláni að fingurbrotna á síðustu æfingu liðsins fyrir leikinn gegn Fram.

,,Hún lenti illa á hendinni á æfingunni og fór úr lið og í leiðinni brotnaði eitthvað í fingrinum. Þetta er mikið áfall fyrir okkur þar sem Dora hefur komið vel inn í þetta hjá okkur og býr yfir bæði mikilli reynslu og góðum leikskilningi.”

,,Það þýðir samt ekkert að hugsa um þetta, nú er ljóst að hún verður ekki með okkur næstu vikurnar og nú fá aðrir leikmenn tækifæri og aukna ábyrgð. Ef við hugsum eitthvað jákvætt við þessi meiðsli, þá gæti þetta hjálpað okkur þegar lengra líður á tímabilið að aðrir leikmenn hafi fengið aukna ábyrgð á meðan Dora jafnar sig á þessum meiðslum,” sagði Arnar Daði þjálfari Stjörnunnar.

Þar með er ljóst að Stjarnan verður án Doru Pajic í leiknum gegn Gróttu næstkomandi laugardag þegar liðin mætast í 3.umferð Olís-deildar kvenna. Í kjölfarið tekur við landsleikjapása og áður en Stjarnan mætir Haukum, HK og KA/Þór fyrir aðra landsleikjapásuna á tímabilinu. 

Á föstudaginn fékk Stjarnan, leikstjórnandann, Söru Rún Gísladóttur á láni frá Fram.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top