
Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur hjá Sporting þegar liðið vann ellefu marka sigur á ABC Braga, 43-32, í portúgölsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Orri Freyr skoraði sex mörk og deildi markahæsta sætinu hjá Sporting með Carlos Álvarez og Diogo Branquinho. Sporting hefur byrjað titilvörnina af krafti og er með fullt hús, níu stig eftir fyrstu þrjá leiki sína, líkt og Marítimo. Sporting er ríkjandi meistari og hefur unnið portúgalska meistaratitilinn þrjú ár í röð. Sporting hafði einnig farið vel af stað í Meistaradeildinni fyrr í vikunni þegar liðið vann GOG 43-33. Orri Freyr skoraði þá fjögur mörk og er því kominn með tíu mörk í síðustu tveimur leikjum liðsins. Þorgils Jón Svölu Baldursson skoraði eitt mark fyrir Caserío Ciudad Real þegar liðið gerði 30-30 jafntefli við Villa de Aranda á útivelli í fyrstu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn var heldur betur dramatískur. Villa de Aranda leiddi 18-12 í hálfleik og hafði mest átta marka forskot, 18-10. Caserío sneri hins vegar taflinu við eftir hlé og jafnaði í 24-24 á 44. mínútu. Heimamenn náðu aftur þriggja marka forskoti, 27-24, en Caserío neitaði að gefast upp. Aitor Albizu jafnaði í 30-30 þegar tæpar tvær mínútur voru eftir og bæði lið fengu tækifæri til að tryggja sér sigurinn í lokin án þess að nýta þau. Þorgils Jón gekk til liðs við Caserío frá Val undir lok ágúst og samdi til eins árs við spænska félagið.Þorgils skoraði í ótrúlegri endurkomu

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.