
21 leikmaður hefur verið valinn í elítuhóp HSÍ, sem kemur saman til þriggja daga æfingatarnar í vikunni. Þetta segir í tilkynningunni frá HSÍ en Snorri Steinn kynnti verkefnið á þjálfarafundi með þjálfurum í Olís-deild og Grill66-deild karla fyrir komandi tímabil. Hópurinn kemur saman fimmtudaginn 17. september og æfir fram á laugardag 19. september. ,,Í hópnum er blanda af leikmönnum sem hafa þegar bankað á dyrnar hjá A-landsliðinu og efnilegustu leikmönnum landsins sem eru að stíga sín fyrstu skref í Olísdeildinni," segir í tilkynningunni frá HSÍ. Þrír markverðir eru í hópnum en athygli vekur að enginn leikmaður ÍR er í hópnum sem leikur í Grill66-deildinni þar eru hinsvegar leikmenn á borð við Jökul Blöndal Björnsson sem var í lykilhlutverki í 20 ára landsliði Íslands í sumar og Patrekur Smári Arnarsson sem er fyrirliði U18 ára landsliðsins, en Snorri Steinn nefndi hann fyrr á árinu sem einn efnilegasta leikmann landsins. Hver er efnilegasti leikmaður landsins að mati Snorra Steins? Þjálfarateymið og starfsmenn hópsins eru Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari, Óskar Bjarni Óskarsson, Hrannar Guðmundsson, Roland Eradze, Jón Gunnar Kristjánsson, Guðni Jónsson og Erlendur Egilsson. Hópurinn er svona skipaður: Markverðir: Ágúst Elí Björgvinsson, KA
Einar Baldvin Baldvinsson, Afturelding
Jón Þórarinn Þorsteinsson, FH Aðrir leikmenn: Arnór Snær Óskarsson, Valur
Ágúst Guðmundsson, FH
Brynjar Narfi Arndal, FH
Dagur Gautason, KA
Dagur Árni Heimisson, KA
Daníel Montoro, Valur
Freyr Aronsson, Haukar
Gunnar Róbertsson, Valur
Harri Halldórsson, Afturelding
Ingvar Dagur Gunnarsson, FH
Jens Bragi Bergþórsson, KA
Jón Bjarni Ólafsson, FH
Ómar Darri Sigurgeirsson, FH
Sigurður Páll Matthíasson, Víkingur
Skarphéðinn Ívar Einarsson, Haukar
Stefán Magni Hjartarson, Afturelding
Ævar Smári Gunnarsson, Afturelding
Össur Haraldsson, Haukar

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.