
Göppingen vann nauman 29-28 sigur gegn Rhein-Neckar Löwen í eina leik kvöldsins í þýsku Bundesligunni. Haukur Þrastarson skoraði þrjú mörk fyrir gestina en Ýmir Örn Gíslason er áfram fjarverandi vegna meiðsla í liði Göppingen. Heimamenn byrjuðu betur og komust í 4-2. Rhein-Neckar Löwen hélt þó í við Göppingen og var aðeins einu marki undir í hálfleik, 15-14. Mikið jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik. Gestirnir komust tveimur mörkum yfir, 23-21, en Göppingen svaraði og jafnaði í 24-24. Staðan var aftur jöfn, 26-26, þegar tæpar átta mínútur voru eftir. Göppingen skoraði tvö næstu mörk og náði 28-26 forystu. Rutger ten Velde kom heimamönnum síðan í 29-27 þegar rúm mínúta var eftir. Rhein-Neckar Löwen minnkaði muninn í 29-28 þegar aðeins tvær sekúndur voru eftir en lengra komust gestirnir ekki. Ten Velde var markahæstur Göppingen með sjö mörk, Elias Newel skoraði sex og Oskar Neudeck fimm. Dani Baijensvar markahæstur Rhein-Neckar Löwen með sjö mörk. Göppingen er með sex stig eftir fyrstu fimm leiki sína og situr í fimmta sæti. Rhein-Neckar Löwen er með fjögur stig og hefur tapað þremur af fyrstu fimm leikjum sínum. Markaskorun Göppingen: Rutger ten Velde 7, Elias Newel 6, Oskar Neudeck 5, Martin Hanne 4, Victor Kløve 3, Erik Persson 2, Franko Lastro 2. Markaskorun Rhein-Neckar Löwen: Dani Baijens 7, Mats Steinhauser 4, Janne Lassen 4, Haukur Þrastarson 3, Tim Nothdurft 3, Gian Atten Steenaerts 3, Jannik Kohlbacher 2, Edwin Aspenbäck 1, Kentin Mahé 1.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.