
Reynir Þór Stefánsson var markahæstur í liði Melsungen og Gísli Þorgeir Kristjánsson átti öflugan leik fyrir Magdeburg þegar sex leikir fóru fram í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Tobias Nielsen stal þó senunni með 13 mörkum fyrir í sigri gegn RK Celje. Melsungen mátti þola eins marks tap á útivelli gegn Wisla Plock en Melsungen fékk tækifæri til að jafna metin í lokasókninni. Janus Daði Smárason var ekki í leikmannahópi Barcelona vegna veikinda og þá var Þorsteinn Leó heldur ekki í leikmannahópi Porto. Reynir Þór Stefánsson var markahæstur Melsungen þegar þýska liðið tapaði naumlega, 25-24, gegn Wisla Plock í Póllandi. Melsungen leiddi 15-13 í hálfleik en heimamenn sneru leiknum sér í hag eftir hlé. Reynir Þór átti góðan leik og skoraði sjö mörk fyrir Melsungen. Magdeburg vann öruggan tíu marka útisigur gegn Kriens-Luzern í Sviss. Þýska stórliðið lagði grunninn að sigrinum strax í fyrri hálfleik og leiddi með níu mörkum, 20-11, í hálfleik. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fjögur mörk og gaf átta stoðsendingar. Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark og gaf tvær stoðsendingar en Ómar Ingi Magnússon skoraði einnig eitt mark og gaf þrjár stoðsendingar. Albin Lagergren, Daniel Pettersson, Felix Claar og Magnus Saugstrup voru markahæstir Magdeburg með fimm mörk hver. Skanderborg og Dinamo Bucuresti skildu jöfn, 25-25, í Danmörku í æsispennandi leik. Rúmenarnir leiddu í hálfleik með einu marki, 14-15. Skanderborg jafnaði metin í stöðunni 25-25 þegar rúmlega tvær mínútur lifðu leiks en ekkert var skorað eftir það. Kristján Örn Kristjánsson, Donni, átti erfitt uppdráttar í sóknarleik Skanderborg. Hann reyndi mikið fyrir sér en skoraði tvö mörk úr 13 skotum. Emil Bergholt Buhl var markahæstur Skanderborg með sex mörk en Branko Vujovic skoraði fimm mörk fyrir Dinamo Bucuresti. Barcelona vann nauman eins marks útisigur á Montpellier í Frakklandi, 28-27. Viktor Gísli Hallgrímsson kom ekki við sögu í marki Barcelona en Janus Daði Smárason var fjarverandi vegna veikinda. Dika Mem var markahæstur Barcelona með fimm mörk en Kyllian Villeminot var markahæstur Montpellier og markahæsti maður leiksins með sjö mörk. Porto vann fjögurra marka heimasigur á Partizan, 32-28. Þorsteinn Leó Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Porto í leiknum. Álaborg vann stórsigur á RK Celje í Slóveníu, 36-26. Tobias Nielsen fór á kostum í liði danska meistaraliðsins og skoraði 13 mörk. Juri Knorr skoraði sex mörk og Mads Hoxer bætti við fimm. Wisla Plock – Melsungen 25-24Wisla Plock – Melsungen 25-24 (13-15)
Kriens-Luzern – Magdeburg 29-39 (11-20)
Skanderborg – Dinamo Bucuresti 25-25
Montpellier – Barcelona 27-28
Porto – Partizan 32-28
RK Celje – Álaborg 26-36
Úrslit kvöldsins
Kriens-Luzern – Magdeburg 29-39
Skanderborg – Dinamo Bucuresti 25-25
Montpellier – Barcelona 27-28
Porto – Partizan 32-28
RK Celje – Aalborg 26-36

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.