Vera Víglundsdóttir hefur tekið skóna af hillunni og skrifað undir samning við FH og mun leika með liðinu í Grill66-deildinni í vetur. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag. Vera sem er fædd árið 2004 er uppalin í FH en hún lék síðast með liðinu tímabilið 2022-2023. ,,Það er virkilega ánægjulegt að Vera hafi ákveðið að taka slaginn með okkur enda öflugur leikmaður á báðum endum vallarins," segir í tilkynningunni frá FH. Vera hefur leikið með FH í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins en FH er með tvö stig að loknum tveimur leikjum. Liðið vann Gróttu 2 í 1.umferðinni en tapaði gegn Aftureldingu í síðustu umferð. FH tekur á móti HK 2 í 3.umferð Grill66-deildarinnar í Kaplakrika í kvöld klukkan 19:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.