
Handboltahöllin vakti athygli á skemmtilegu marki sem Valgerður Elín Snorradóttir leikmaður Stjörnunnar skoraði gegn Fram í 2.umferð Olís-deildar kvenna. ,,Við ætlum að sýna eitt Stjörnumark, það var mjög skemmtilegt. Þetta var svolítið í gamla daga þegar það var búið að taka Sigga Sveins úr umferð og þá beitti hann stundum hægri,” sagði Hörður Magnússon þáttastjórnandi Handboltahallarinnar. ,,Maður reddar sér með vinstri. Það er mikill kostur að geta skipt um hendi og klára þetta,” bætti Hildigunnur Einarsdóttir sérfræðingur Handboltahallarinnar við. Markið má sjá hér að neðan, en þar má sjá þegar Valgerður Elín fintar sig í gegnum vörn Fram og neyðist síðan til að skjóta með vinstri og skorar framhjá Ethel Gyðu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.