Hrafnhildur missir af stórleiknum gegn Val
Egill Bjarni Friðjónsson

Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir, markvörður Hauka, verður ekki með liðinu gegn Val í stórleik 3. umferðar Olís-deildar kvenna á sunnudaginn.

Hrafnhildur tognaði á hné í síðari hálfleik í sigri Hauka á KA/Þór í 2. umferð deildarinnar um síðustu helgi. Hún virtist sárkvalin og þurfti aðstoð við að komast af vellinum.

Stefán Arnarson, þjálfari Hauka, sagði í samtali við Handkastið að gera mætti ráð fyrir því að Hrafnhildur yrði frá keppni í eina til þrjár vikur. Tíminn einn muni þó leiða í ljós hversu lengi hún verður að jafna sig.

Því er ljóst að Hrafnhildur verður ekki í leikmannahópi Hauka þegar liðið tekur á móti Val á Ásvöllum á sunnudaginn klukkan 18.

Haukar hafa unnið báða leiki sína til þessa, gegn HK og KA/Þór, og eru með fullt hús stiga. Valur er með tvö stig eftir góðan sigur á ÍBV í síðustu umferð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top