
3.umferðin í Olís-deild kvenna hefst í dag fjórum leikjum en umferðin lýkur annað kvöld með stórleik Hauka og Vals á Ásvöllum. Sá leikur hefst klukkan 18:00 og verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir er markahæsti leikmaður Olís-deildarinnar eftir tvær umferðir með 23 mörk en Katrín Scheving leikmaður Gróttu kemur næst með 21 mark. Grótta fær Stjörnuna í heimsókn klukkan 13:30 í dag. Færeyingurinn, Joan Rúnadóttir leikmaður KA/Þórs er þriðja markahæst með 18 mörk en KA/Þór fer í Breiðholtið í dag og mætir þar ÍR í lokaleik dagsins klukkan 15:00. Leikir dagsins: Hér má sjá markahæstu leikmenn Olís-deildar kvenna eftir 1.umferðina:
13:00 Fram - HK
13:30 Grótta - Stjarnan
14:00 ÍBV - Selfoss
15:00 ÍR - KA/Þór
Leikur morgundagsins:
18:00 Haukar - Valur

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.