Sveinn á blað í stórsigri – Tumi Steinn enn frá
FRISO GENTSCH / dpa Picture-Alliance via AFP

Sveinn Jóhannsson og félagar hans í Chambéry unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu í frönsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar liðið vann sannfærandi 38-29 útisigur gegn Dunkerque. Tumi Steinn Rúnarsson var hins vegar fjarverandi vegna meiðsla þegar Bärnbach/Köflach tapaði fyrir Handball Tirol í Austurríki, 29-26.

Handball Tirol er á toppi deildarinnar í Austurríki með sex stig að loknum þremur leikjum. Tumi Steinn og félagar eru hinsvegar með tvö stig.

Chambéry hafði tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í frönsku úrvalsdeildinni en liðið svaraði heldur betur fyrir sig gegn Dunkerque.

Gestirnir frá Chambéry leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 17-14, og tóku síðan öll völd í síðari hálfleik. Sóknarleikurinn gekk afar vel og að lokum varð niðurstaðan öruggur níu marka sigur, 38-29.

Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark fyrir Chambéry í leiknum. Lucas Vanègue var markahæstur liðsins með átta mörk úr tíu skotum og gaf auk þess 13 stoðsendingar. Elio Zammit skoraði sjö mörk og Emilien Peyronnet sex.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top