Rakel ekkert leikið á tímabilinu og bíður eftir grænu ljósi
Sævar Jónasson

Landsliðskonan Rakel Oddný Guðmundsdóttir hefur ekkert leikið með Haukum í upphafi tímabilsins vegna meiðsla sem hafa hrjáð hana frá því í sumar.

Haukar hafa þó farið vel af stað og unnið fyrstu tvo leiki sína í Olís-deild kvenna gegn HK og KA/Þór.

Rakel hefur verið að glíma við meiðsli síðan í sumar og hefur þar af leiðandi ekkert spilað með okkur í upphafi tímabilsins. Hún er á batavegi og við bíðum eftir grænu ljósi frá okkar fagfólki um hvenær hún má byrja að spila,“ sagði Stefán Arnarson, þjálfari Hauka, í samtali við Handkastið.

Rakel Oddný var næstmarkahæsti leikmaður Hauka á síðustu leiktíð með 110 mörk. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var markahæst í liðinu með 148 mörk.

Þóra Hrafnkelsdóttir og Aníta Eik Jónsdóttir hafa leyst stöðuna í vinstra horni Hauka í fjarveru Rakelar í upphafi tímabilsins.

Stórleikur 3. umferðar Olís-deildar kvenna fer fram í dag þegar Haukar taka á móti Val á Ásvöllum. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður sýndur í opinni dagskrá á Livey - rás 13.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top