
SC Magdeburg tapaði sínum fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni í 18 leikjum þegar liðið tapaði gegn MT Melsungen á útivelli í gær, 37-34. Síðasta deildartap Magdeburg fyrir leikinn hafði komið gegn THW Kiel, 29-31, í febrúar. Þýsku meistararnir léku því 17 deildarleiki í röð án þess að tapa áður en Melsungen batt enda á taplausu hrinuna. Magdeburg hóf leikinn illa og lenti 5-1 undir á fyrstu fimm mínútunum. Melsungen var með fimm marka forskot í hálfleik, 19-14, og náði mest níu marka forystu í síðari hálfleik. Magdeburg svaraði með sex mörkum í röð undir lokin en áhlaupið kom of seint og Melsungen fagnaði þriggja marka sigri. Felix Claar var markahæstur hjá Magdeburg með ellefu mörk. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm mörk og Ómar Ingi Magnússon þrjú. Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað. Þetta var jafnframt fyrsta tap Magdeburg á yfirstandandi tímabili en liðið hafði tekið sjö stig úr fyrstu fjórum leikjum sínum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.