Palicka frá í nokkrar vikur eftir undarleg meiðsli
Andreas Gora /AFP

Andreas Palicka, markvörður Füchse Berlin, verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa orðið fyrir meiðslum á vinstri hendi í leik liðsins gegn Bergischer HC í þýsku Bundesligunni.

Palicka þurfti að yfirgefa völlinn snemma leiks en meiðslin virtust koma upp án þess að nokkur mótherji kæmi þar nærri.

Um tólf og hálf mínúta var liðin þegar Fynn Hangstein skoraði fyrir Bergischer HC og minnkaði muninn í 6-4. Palicka sótti boltann í netið og kom honum strax aftur í leik en hafði þá fundið fyrir meiðslum á vinstri hendi. Sænski markvörðurinn fór í kjölfarið af velli og kom ekki meira við sögu.

Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse Berlin, staðfesti í samtali við þýska miðilinn Bild að um talsverð meiðsli væri að ræða.

„Þetta er alvarlegt holdsár,“ sagði Hanning og bætti við að Palicka yrði örugglega frá keppni í nokkrar vikur.

Meiðslin koma á afar óheppilegum tíma fyrir Füchse Berlin sem er á leið á heimsmeistaramót félagsliða. Berlínarliðið mætir Burgan SC frá Kúveit í fyrsta leik sínum og síðar bíða væntanlega leikir gegn Veszprém og Al Ahly.

Füchse á síðan útileik gegn Bietigheim í Bundesligunni 3. október áður en Porto kemur í heimsókn í Meistaradeild Evrópu 8. október.

Füchse hefur nokkra möguleika til að fylla skarð Palicka. Hinir ungu Pius Joppich, 20 ára, og Henning Lahuis, 19 ára, eru hjá varaliði félagsins. Þá eru Frederik Höler og Max Grundmann hjá venslafélaginu Potsdam og gætu mögulega fengið leikheimild með Füchse með skömmum fyrirvara.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top