KA/Þór leitar að liðsstyrk eftir meiðsli Lydíu
Egill Bjarni Friðjónsson

Rætt var um sigur ÍR gegn KA/Þór í 3. umferð Olís-deildar kvenna í nýjasta þætti Handkastsins. ÍR vann leikinn 23-16 eftir að hafa verið 10-5 yfir í hálfleik. KA/Þór hefur þar með tapað öllum þremur leikjum sínum á tímabilinu og mætir Val í næstu umferð.

Jónatan Magnússon, þjálfari KA/Þórs, var ekki á hliðarlínunni þar sem hann gekkst nýverið undir mjaðmaliðsskipti. Handkastið greindi frá ástæðu fjarveru hans í morgun.

ENGINN TÍMI GÓÐUR FYRIR MJAÐMALIÐSKIPTI HJÁ HANDBOLTAÞJÁLFARA

Lydía Gunnþórsdóttir meiddist í leiknum og óttast er að hún hafi brotið fingur.

„Hann hefur nóg um að hugsa heima hjá sér meðan hann er að jafna sig. Lydía Gunnþórsdóttir meiðist í leiknum gegn ÍR. Samkvæmt okkar heimildum puttabrotnaði hún og það er ekkert lið sem má við svona meiðslum. KA/Þór mátti þó síst allra liða við þessu. Liðið er fáliðað fyrir og Lydía er í stóru hlutverki,“ sagði Stymmi klippari í Handkastinu.

Jónatan sagði í samtali við Handkastið að ekki væri enn staðfest að Lydía væri fingurbrotin en bætti við að það væri ansi líklegt. Fram kom í þættinum að KA/Þór væri farið að skoða möguleikann á að styrkja leikmannahópinn.

„KA/Þór er að leita sér að liðsstyrk, bæði vegna meiðsla Lydíu og örugglega einnig til framtíðar. Það gæti orðið svolítið erfitt að finna leikmann sem er tilbúinn að fara norður ef kennitalan á að vera íslensk.“

„Ég held að þær séu að leita að öllu yfir höfuð en flest lið halda fast í sína leikmenn. Það er heldur engin brjálæðisleg breidd hjá flestum liðunum og því gæti reynst erfitt fyrir KA/Þór að fá íslenskan leikmann norður," sagði Kristinn Björgúlfsson sem er vel tengdur fyrir norðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top