ÍBV 2 sló Hörð úr bikarnum annað árið í röð
Egill Bjarni Friðjónsson

ÍBV 2 er komið áfram í 16-liða úrslit Powerade-bikars karla eftir fjögurra marka sigur á Grill 66-deildarliði Harðar frá Ísafirði, 32-28, í fyrsta leik 32-liða úrslitanna í dag.

Þetta er annað árið í röð sem ÍBV 2 slær Hörð úr bikarkeppninni.

Harðarmenn byrjuðu betur og komust í 7-4 en Eyjamenn svöruðu með þremur mörkum í röð og jöfnuðu í 7-7. Eftir það náði ÍBV 2 undirtökunum og var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 17-15. Sæþór Garðarsson fékk að líta rauða spjaldið í fyrri hálfleik.

Hörður hélt sér inni í leiknum lengst af í síðari hálfleik og minnkaði muninn í eitt mark, 24-23, þegar tæpar 13 mínútur voru eftir. Þá sigu Eyjamenn fram úr, náðu sex marka forskoti í stöðunni 31-25 og tryggðu sér að lokum 32-28 sigur.

Óliver Daðason fór fyrir ÍBV 2 og skoraði tíu mörk. Theodór Sigurbjörnsson bætti við átta mörkum og Ágúst Emil Grétarsson skoraði fimm.

Jose Esteves Lopes Neto var markahæstur Harðarmanna með sjö mörk. Jhonatan C. R. Dos Santos og Pétur Þór Jónsson skoruðu fimm mörk hvor.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top