Reynir Þór Stefánsson fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína þegar MT Melsungen vann sterkan 37-34 sigur gegn Þýskalandsmeisturum SC Magdeburg í gær. Vegna fjarveru Dainis Kristopans þurfti Reynir enn á ný að leysa stöðu hægri skyttu stöðuna. Reynir skilaði hlutverkinu vel og var tekinn sérstaklega fyrir í þýskri umfjöllun um leikinn. Melsungen kom Magdeburg í mikil vandræði strax frá upphafi og komst meðal annars í 5-1. Reynir skoraði síðan áttunda mark liðsins með langskoti úr hægri skyttustöðunni og kom Melsungen í 8-4. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Reynir leysir þessa stöðu með góðum árangri. Aðeins nokkrum dögum áður skoraði hann sjö mörk úr hægri skyttunni í leik Melsungen gegn Wisla Plock í Meistaradeild Evrópu. Reynir virðist því vera að festa sig í sessi í nýju hlutverki hjá Melsungen og sýna að hann geti leyst hægri skyttustöðuna þrátt fyrir að vera rétthentur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.