Haukar mæta Handball Esch í Evrópubikarnum
Jón Gautur Fótó

Karlalið Hauka dróst gegn Handball Esch frá Lúxemborg í 64-liða úrslitum Evrópubikarsins en dregið var í 2. umferð keppninnar í morgun.

Haukar sátu hjá í fyrstu umferð keppninnar og fara því beint inn í 64-liða úrslitin. Alls eru 64 lið eftir í keppninni, þar af 45 sem sátu hjá í fyrstu umferð og 19 sem tryggðu sér áframhaldandi þátttöku um helgina. 

Handball Esch þurfti hins vegar að fara í gegnum 1. umferðina. Lúxemborgarliðið mætti GRK Tikves frá Norður-Makedóníu og fóru báðir leikirnir fram þar í landi um síðustu helgi. Esch vann fyrri leikinn 30-27 en tapaði þeim síðari 33-32 og fór því áfram, 62-60 samanlagt. 

Handball Esch tók þátt í Evrópubikarnum á síðustu leiktíð og féll þá úr leik í fyrstu umferð gegn Vogošca frá Bosníu og Hersegóvínu. Tímabilið 2024/25 komst Esch í 2. umferð þar sem HC Motor sló liðið úr keppni.

Leikirnir í 64-liða úrslitunum eiga samkvæmt leikjadagatali EHF að fara fram helgarnar 17.–18. október og 24.–25. október. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top