Pólsku handknattleikskonurnar Malgorzata Trawczynska og Andzelika Petroll eru samkvæmt heimildum Handkastsins á leið til Selfoss. Ef marka má Instagram síður þeirra tveggja þá hafa þær merkt sig sem leikmenn Selfoss án þess þó að félagið sé búið að tilkynna þær. Báðar léku þær með TAURON Ruch Szczypiorno Kalisz í pólsku úrvalsdeildinni en þær ættu að styrkja Selfossliðið verulega fyrir framhaldið í Olís-deild kvenna. Liðið endaði í neðsta sæti pólsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð en Selfoss gerði slíkt hið sama í Olís-deildinni á síðustu leiktíð. Vegna fjölgunar liða í Olís-deildinni fyrir tímabilið og þar sem Víkingur afþakkaði sæti sitt í deildinni níu dögum fyrir mót fékk Selfoss þátttökurétt í Olís-deildinni skömmu fyrir tímabilið. Trawczynska er 29 ára gömul örvhent hægri skytta sem býr yfir mikilli reynslu. Hún hefur meðal annars leikið með Zagłębie Lubin, Piotrcovia, JKS Jarosław, DKKA og Alba Fehérvár. Hún hefur einnig leikið í Evrópukeppnum og skoraði 39 mörk fyrir JKS Jarosław í Evrópubikarnum tímabilið 2022/23. Petroll er 25 ára gamall línumaður. Hún er 174 sentímetrar á hæð og lék lengst af með SPR Gdynia áður en hún gekk til liðs við Szczypiorno Kalisz fyrir tímabilið 2024/25 og steig þar sín fyrstu skref í pólsku úrvalsdeildinni. Selfoss er með tvö stig eftir fyrstu þrjá leiki Olís-deildarinnar. Selfoss vann óvæntan sigur á Val í 1.umferð deildarinnar en hefur tapað gegn Gróttu og ÍBV í síðustu tveimur leikjum. Selfoss heimsækir topplið Fram í 4.umferð Olís-deildarinnar, 1. október og spurning hvort þær pólsku verði orðnar löglegar fyrir þann leik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.