Hannover úr leik – Íslendingalið Magdeburg og Gummersbach áfram
Jacob Schröter /AFP

Tíu leikir fóru fram í annarri umferð þýsku bikarkeppninnar, DHB-Pokal, í kvöld. Hannover-Burgdorf féll úr leik eftir 35–28 tap gegn Balingen-Weilstetten. Sigvaldi Björn Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Hannover vegna meiðsla sem hann hefur glímt við undanfarnar vikur. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari liðsins. 

Magdeburg vann Wetzlar, lið Rúnars Sigtryggssonar, 38–28. Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson eitt fyrir Magdeburg, sem var 19–14 yfir í hálfleik. Elvar Örn Jónsson leikur einnig með Magdeburg. 

Guðjón Valur Sigurðsson stýrði Gummersbach til 38–28 útisigurs á Dessau-Roßlauer HV. Garðar Ingi Sindrason skoraði þrjú mörk og Elliði Snær Viðarsson eitt, en Teitur Örn Einarsson var ekki með Gummersbach. Liðið var átta mörkum yfir í hálfleik, 20–12. 

Flensburg, lið Arnars Freys Arnarssonar, vann Lübeck-Schwartau, lið Adams Thorstensen, 38–35. og Göppingen lagði Coburg 36–26. Ýmir Örn Gíslason er enn frá vegna meiðsla hjá Göppingen

Úrslit kvöldsins:

Balingen-Weilstetten – Hannover-Burgdorf 35–28
Magdeburg – Wetzlar 38–28
Lübeck-Schwartau – Flensburg-Handewitt 35–38
Hüttenberg – Kiel 23–41
Dessau-Roßlauer HV – Gummersbach 28–38
Coburg – Göppingen 26–36
Bietigheim – Minden 32–34
Emsdetten – Eisenach 36–33
Essen – Potsdam 25–32
Longericher SC – Eintracht Hagen 32–40

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top