Viggó skoraði tvö í bikarsigri Erlangen
Erlangen

Viggó Kristjánsson skoraði tvö mörk þegar HC Erlangen tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handbolta með 29-26 útisigri gegn Stuttgart í gærkvöldi.

Erlangen byrjaði leikinn mun betur og náði snemma góðum tökum á honum. Gestirnir leiddu 5-2 og héldu Stuttgart í aðeins níu mörkum í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 13-9 fyrir Erlangen.

Rubens Pierre átti stóran þátt í góðri stöðu Erlangen en hann varði átta skot í fyrri hálfleik og alls 14 í leiknum. Stuttgart gekk illa að nýta færin sín og Erlangen hélt því áfram að stjórna leiknum eftir hlé.

Erlangen náði mest sjö marka forskoti, 23-16, þegar um þrettán mínútur voru eftir. Stuttgart minnkaði muninn undir lokin en komst aldrei nógu nálægt og Erlangen fagnaði að lokum 29-26 sigri og sæti í 16-liða úrslitum.

Viggó, sem er nýkominn aftur til leiks eftir langa fjarveru vegna meiðsla, skoraði tvö mörk úr tveimur vítaköstum. Hann setti meðal annars punktinn yfir i-ið með síðasta marki leiksins þegar hann skoraði með laglegri vippu af vítalínunni.

Marek Nissen var markahæstur hjá Erlangen með níu mörk, Frieder Bandlow skoraði fimm og þeir Yannik Bialowas og Eloy Morante Maldonado fjögur hvor.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top