Afturelding er klúbbur sem vill hafa tvö lið í efstu deild

Mosfellingurinn Katrín Helga Davíðsdóttir hefur byrjað tímabilið mjög vel með uppeldisfélagi sínu Aftureldingu.

Afturelding hefur unnið fyrstu 3 leikina sína í Grill 66 deildinni og Katrín Helga hefur skorað 26 mörk í þessum 3 leikjum.

Hin 25 ára gamla Katrín Helga, sem leikur sem skytta og leikstjórnandi, hefur sýnt uppeldisfélagi sínu mikla hollustu alla tíð og hefur aldrei leikið fyrir annað lið þrátt fyrir áhuga frá öðrum félögum í gegnum tíðina.

Við heyrðum aðeins í Katrínu og fengum hana til að segja okkur aðeins frá undirbúningstímabilinu, nýjum þjálfara liðsins og tímabilið sem framundan er.

"Undirbúningstímabilið byrjaði snemma. Við tókum slatta af æfingaleikjum sem var mjög gott til að púsla liðinu saman, koma nýjum leikmönnum í takt við restina af liðinu og fyrir nýjan þjálfara til að kynnast hópnum"

"Basti hefur komið inn af krafti með nýjar áherslur, gott utanumhald og ferska sýn á liðið svo það var gott að getað byrjað snemma í sumar að vinna saman. Svo fáum við Birki (Benediktsson) líka inn í þetta sem aðstoðarþjálfara sem er frábært"

"Við erum búnar að byrja tímabilið nákvæmnlega eins og við ætluðum. Mér finnst frábært hvað nýjir leikmenn hafa stigið vel inn í ný hlutverk og liðið er farið að smella vel saman innan vallar sem utan. Þetta er þéttur og góður hópur og margar okkar búnar að spila lengi saman"

"Við áttum auðvitað erfitt tímabil í fyrra og ætluðum ekki að endurtaka það. Afturelding er klúbbur sem vill hafa tvö lið í efstu deild og maður finnur fyrir góðum stuðningi og einhvern veginn aukinni stemmingu fyrir þessu tímabili innan félagsins. Við sjálfar ætlum okkur auðvitað upp svo nú er bara að halda rétt á spöðunum og keyra á þetta" sagði Mosfellingurinn Katrín Helga Davíðsdóttir að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top